Óttast að skuldaaðgerðir leiði til verðbólgu og veiki krónuna Höskuldur Kári Schram skrifar 11. desember 2013 12:58 Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands telur viðbúið að skuldaaðgerðir ríkisstjórnarinnar muni auka verðbólgu og veikja gengi krónunnar. Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, útilokar ekki að sérfræðihópur ríkisstjórnarinnar hafi mögulega vanmetið áhrif aðgerðarinnar á íslenskt efnahagslíf. Stýrivextir Seðlabanka íslands verða óbreyttir samkvæmt ákvörðun Peningastefnunefndar. Fram kemur í yfirlýsingu nefndarinnar að niðurstaða kjarasamninga muni hafa afgerandi áhrif á verðbólguhorfur og þróun vaxta á næstu misserum. Verði launahækkanir umfram það sem samrýmist verðbólgumarkmiði bankans sé líklegar að vextir muni hækka. Nefndin telur ennfremur að skuldaaðgerðir ríkisstjórnarinnar muni að óbreyttu auka innlenda eftirpurn og verðbólgu. Innflutningur muni aukast og gengi krónunnar veikjast. Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri, sagði á blaðamannafundi í morgun að áhrifin yrðu að öllum líkindum meiri en gert er ráð fyrir í skýrslu sérfræðihóps ríkisstjórnarinnar um skuldaaðgerðirnar. „Ég held hins vegar að það sé óhætt að segja að okkar mat verður að einhverju leyti annað en það sem kom fram í skýrslu Analytica. Ég ætla ekki að fara í neinn palladóm um þá skýrslu en við munum auðvitað hafa miklu meiri tíma til að gera þessa úttekt.Við erum með miklu þróaðra líkan til þess að meta áhrifin,“ sagði Már. Sérfræðihópurinn hafi haft stuttan tíma til að meta áhrifin. „Þeim er bara auðvitað vorkun. Þeir höfðu skamman tíma og kannski ekki tólin til þess að gera þetta,“ sagði Már. Miðað við umfang aðgerðanna og dreifingu þeirra yfir tíma ætti þéttara taumhald peningastefnunnar að duga til þess að verðbólgumarkmiðið náist á næstu misserum, að öðru óbreyttu. „Okkur sýnist, það sé nokkuð ljóst, að eftirspurnaráhrifin verði meiri en þar er verið að tala um og þ.a.l. hugsanleg verðbólguáhrif. Hver verðbólguáhrifin verða fer þá eftir viðbrögðum okkar að einhverju leyti,“ sagði Már.
Mest lesið Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira