Sannleikurinn: Yfirmaður hjá RÚV býr frítt eins og forsetinn Andri Þór Sturluson skrifar 10. desember 2013 18:01
Kristín Harpa Hálfdánardóttir er staðarhaldari í húsi í eigu Ríkisútvarpsins á Vatnsendahæð. Hún og fjölskylda hennar fá að búa þar frítt en í staðinn þarf hún að gera varla neitt. Hún segir það fjölbreytt og erfitt. Hún þarf að kíkja við heima hjá sér tvisvar á dag til að athuga hvort allt sé ekki í lagi og stundum pípir eitthvað tæki og þá þarf hún að hringja og láta einhvern vita. „Ég var bara beðin um að búa frítt hér. Ég borga ekki leigu en ég borga hlunnindi af þessu. Veit reyndar ekki hversu há sú upphæð er sem bendir til þess að það sé eitthvað smávægilegt,“ segir Kristín Harpa Hálfdánardóttir, yfirmaður íþróttadeildar RÚV, sem líkt og forseti Íslands býr frítt á kostnað skattborgara. „Sem yfirmaður íþrótta hérna á RÚV má færa rök fyrir því að ég sé nokkurskonar sameiningartákn þjóðarinnar. Það er ekkert óeðlilegt við þetta fyrirkomulag. Ég bara fæ þetta frítt og þið borgið. Eðlilegt fyrirkomulag hjá ríkisstofnun.“Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu en þar á Kristín sumarbústað.
Harmageddon Mest lesið Sannleikurinn: Íþróttamaður ársins vann sinn fyrsta titil í ár þegar hann var valinn íþróttamaður ársins Harmageddon Sannleikurinn: Útvarpsstjóri bjargast úr rústum RÚV Harmageddon Tuttugu ára afmæli X-977 - Maus Harmageddon Sannleikurinn: Forsetinn notaði orðið samstaða 17 sinnum í ávarpi sínu Harmageddon Freysi með Stjána Stuð og Soffíu Harmageddon Sannleikurinn um Hátíð vonar Harmageddon Sannleikurinn: Ekki hægt að auglýsa stöðu forstjóra Landspítalans vegna fjárskorts Harmageddon Fæddur á vitlausum áratug Harmageddon Föstudagurinn langi Harmageddon Söngvari Blink 182 hættur í hljómsveitinni Harmageddon
Sannleikurinn: Íþróttamaður ársins vann sinn fyrsta titil í ár þegar hann var valinn íþróttamaður ársins Harmageddon
Sannleikurinn: Íþróttamaður ársins vann sinn fyrsta titil í ár þegar hann var valinn íþróttamaður ársins Harmageddon