Þröstur upp á Heiðar stefna á útgáfu matardisks í kjölfar jólaplötunnar Orri Freyr Rúnarsson skrifar 20. desember 2013 17:48 Umslag Um Jólin með Þröstur upp á Heiðar
Hljómsveitin Þröstur pp á Heiðar rekur tildrög sín til þess að Þröstur gaf vinum og vandamönnum jólalag sem hann samdi fyrir nokkrum árum og að sögn Heiðars leist honum svo vel á lagið að hann stakk upp á því að þeir myndu vinna saman að jólaplötu, enda eitthvað sem hann átti sjálfur eftir að prufa. Platan var tekin upp í haust og er nú kominn út. En platan fékk nafnið Um Jólin. Líkt og vaninn er þegar að hljómsveitir gefa út plötu er nóg að gera hjá þeim þessa dagana en í kvöld kemur hljómsveitin fram á X-Mas 2013 og annað kvöld ætla þeir að troða upp á Jólaplöggi Record Records, en koma þá fram sem Botnleðja (Skemmtaraútgáfa). En sjálfir segjast þeir vera mjög spenntir að sjá og heyra hvernig þeir tónleikar munu þróast. Um framhaldið segja þeir að á döfinni sé að gefa út hálfgerða matarplötu enda starfar Þröstur sem kokkur. En á þeirri plötu fara þeir í uppskriftir og aðferðarfræði. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan. Miðasala á X-Mas er í fullum gangi á https://midi.is/tonleikar/1/8035/ en einnig verður hægt að kaupa miða við hurð í Austurbæ í kvöld en tónleikarnir hefjast klukkan 20:00. Forsala fyrir Jólaplögg Record Records fer einnig fram á midi.is
Harmageddon Mest lesið Samkynhneigðir Aríar taka höndum saman Harmageddon Reykjavíkurdætur gefa út nýtt lag Harmageddon Sannleikurinn: Feitasti auminginn okkar byrjar um áramótin Harmageddon Yfirburðir X977 á Menningarnótt halda áfram Harmageddon Segir umhverfisráðherra ekki notast við rök Harmageddon Ísland í röngu tímabelti Harmageddon Kings Of Leon með nýja plötu Harmageddon Gabríel með stjörnuhröp Harmageddon Kostulegt samtal Frosta við Nígeríusvindlara sem lofar honum milljónum króna Harmageddon Ný heimildarmynd um Kurt Cobain forsýnd Harmageddon