Ísland hagstæðasti staðurinn fyrir gagnaver mþl skrifar 31. maí 2013 10:00 Advania rekur gagnaverið Thor Data Center á Völlunum í Hafnarfirði.
Ísland er afar ákjósanlegur staður fyrir uppbyggingu netþjónabúa. Þetta er niðurstaða nýrrar skýrslu sem unnin var fyrir Landsvirkjun af alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækinu BroadGroup. Í skýrslunni kemur fram að Ísland uppfylli öll skilyrði sem lögð séu til grundvallar við uppbyggingu gagnavera. Hér sé að finna ódýra og græna orku og mikið orkuöryggi, auk þess sem nettengingar við umheiminn séu sterkar. Þá séu stofnanir traustar og viðskiptaumhverfi hagstætt. Raunar telur BroadGroup að ódýrast sé að reka gagnaver á Íslandi sé litið til lengri tíma. Þannig sé umtalsvert ódýrara að reka gagnaver á Íslandi en í Bandaríkjunum, Bretlandi, Svíþjóð, Singapúr og Hong Kong en þessir staðir hafa verið leiðandi í uppbyggingu gagnavera hingað til. Loks kemur fram í skýrslunni að áætluð sé umfangsmikil uppbygging gagnavera á næstu árum enda vaxi internetumferð um 40 til 60% á ári í þróuðum ríkjum og enn hraðar í vanþróaðri ríkjum. Áætlar Microsoft þannig að 50 milljörðum Bandaríkjadala, jafngildi ríflega 6.000 milljarða króna, verði varið í uppbyggingu gagnavera á þessu ári. Þá telur Microsoft að þessi tala vaxi um ríflega 50% til ársins 2020. Tvö gagnaver hafa þegar verið reist á Íslandi, annars vegar Advania Thor Data Center í Hafnarfirði og hins vegar gagnaver Verne Global í Reykjanesbæ.
Mest lesið Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Okkar eigin Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Atvinnulíf Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Viðskipti innlent Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Viðskipti innlent Treystu ekki Kaupþingi Viðskipti innlent Landsbankinn lækkar vexti Viðskipti innlent Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Viðskipti innlent Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Airbnb aukið ójöfnuð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Sjá meira