Kortavelta erlendra ferðamanna eykst milli ára Óli Kristján Ármannsson skrifar 2. júlí 2013 13:42 Á meðan aukning er í erlendri greiðslukortaveltu í maí er 3,1 prósents samdráttur í veltu Íslendinga. Fréttablaðið/Vilhelm
Greiðslukortavelta erlendar ferðamanna í maí jókst um 17,9 prósent frá sama mánuði í fyrra, að því er fram kemur í nýjum tölum Rannsóknaseturs verslunarinnar á Bifröst. Á sama tíma dróst kortavelta Íslendinga saman um 3,1 prósent. „Aukningin skilar sér til verslunar, veitingahúsa, hótela, í menningarstarfsemi og ýmsa aðra þjónustu,“ segir í umfjöllun Rannsóknasetursins. Meðal annars kemur fram að erlendir ferðamenn hafi í mánuðinum greitt hér með kortum sínum 554 milljónir króna fyrir bílaleigubíla. Upphæðin er fjórðungi hærri en í maí í fyrra. „Bílaleigum fjölgar ört og eru nú skráðar 140 bílaleigur á Íslandi. Samkvæmt upplýsingum Samgöngustofu eru skráðar nokkrar nýjar bílaleigur vikulega. Þannig er til dæmis gert ráð skráningu á þremur nýjum bílaleigum í þessari viku.“ Þá kemur fram að ríflega fimmtungsaukning hafi orðið á kortaveltu erlendra ferðamanna vegna gistingar. „Í maí var erlend kortavelta hér á landi vegna gistingar næstum 1,5 milljarðar króna, sem er 22,2 prósenta aukning frá sama mánuði í fyrra. Aukning í veitingasölu til erlendra ferðamanna nam 17,2 prósentum frá síðasta ári.“
Mest lesið Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Fjárfestar leigja Raufarhólshelli og rukka inn Viðskipti innlent Grindvíkingar fá fyrsta fimm stjörnu hótelið Viðskipti innlent Rekstur innan fjárheimilda Viðskipti innlent Sigurjón Árnason: Dómurinn óskiljanlegur, kolrangur og ekki í samræmi við lög og reglur Viðskipti innlent Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig? Atvinnulíf Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Isavia kærir úrskurðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira
Sigurjón Árnason: Dómurinn óskiljanlegur, kolrangur og ekki í samræmi við lög og reglur Viðskipti innlent
Sigurjón Árnason: Dómurinn óskiljanlegur, kolrangur og ekki í samræmi við lög og reglur Viðskipti innlent