Lánshæfi Kópavogs batnar Óli Kristján Ármannsson skrifar 2. júlí 2013 09:21 Skuldastaða Kópavogs er sögð fara batnandi í nýju lánshæfismati bæjarins frá Reitun ehf. Fréttablaðið/Vilhelm
Íslenska lánshæfismatsfyrirtækið Reitun ehf. hefur hækkað lánshæfismat Kópavogsbæjar úr B í B+ með stöðugum horfum. Bærinn er sagður hafa unnið vel úr afleiðingum efnahagshrunsins. Rekstrarframlegð hafi batnað verulega og veltufé frá rekstri einnig sterkt. Ástæða er því sögð til að hækka matið, þrátt fyrir „minnkandi þrótt efnahagsbatans,“ Bent er á að skuldir Kópavogsbæjar lækki hratt og að endurfjármögnun lána hafi gengið vel. Þá verði gengisáhætta sveitarfélagsins nánast horfin eftir þetta ár, þar sem tekist hafi að endurfjármagna evrulán frá Dexia banka í krónum. „Afborganir lána á næstu árum eru mun lægri en í ár og ætti að vera hægt að fjármagna þær að stórum hluta með veltufé frá rekstri,“ segir í matinu. Minnt er á að eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaganna hafi fyrir nokkrum misserum gert athugasemdir við of hátt skuldahlutfall Kópavogsbæjar, þ.e. skuldir voru of háar á móti tekjum. Reitun segir að bærinn hafi tekið tillit til ábendinga og tilmæla eftirlitsnefndarinnar. „Fyrir liggur áætlun þar sem gert er ráð fyrir að bærinn muni ná að uppfylla kröfu um 150% skuldahlutfall á árinu 2018. Miðað við stöðuna í dag er útlit fyrir að 150% skuldahlutfall muni hugsanlega nást ári fyrr, eða árið 2017,“ segir í matinu. Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með um 32 þúsund íbúa. Fram kemur í umfjöllun Reitunar að árleg fjölgun íbúa frá árinu 2000 hafi að meðaltali verið um 695 manns. Íbúum hefur þar með fjölgað um 41% frá aldamótum. Til samanburðar hafi íbúum í Reykjavík fjölgað um 9% á sama tíma. Í lánshæfismatinu kemur fram að stærð Kópavogs og vöxtur hafi jákvæð áhrif á lánshæfismatið. Kópavogsbær samdi fyrir þremur árum við Reitun um greiningu og mat á lánshæfi sveitarfélagsins gagnvart fjárfestum á skuldabréfamarkaði. Bærinn var fyrstur sveitarfélaga til að gera slíkan samning. Reitun er dótturfélag IFS greiningar og var stofnað árið 2010.
Mest lesið Okkar eiginn Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Atvinnulíf Landsbankinn lækkar vexti Viðskipti innlent Airbnb aukið ójöfnuð Viðskipti innlent Eintak af dýrustu bók heims seldist á 1,3 milljarða Viðskipti erlent Áfrýjar í Imon-málinu Viðskipti innlent Grettisgata drottnari heimagistingarinnar Viðskipti innlent Stýrivextir óbreyttir Viðskipti innlent Treystu ekki Kaupþingi Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Isavia kærir úrskurðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira