Lífeyrisjóðirnir hugleiða kaup á Hampiðjureitnum Lovísa Eiríksdóttir skrifar 8. júlí 2013 07:00 Teikningar af íbúðarhúsnæðinu á Hampiðjureitnum. Áætlað er að fullnaðarframkvæmdum ljúki árið 2015.
Lífeyrissjóðir huga nú að því að fjárfesta í 139 íbúðum á Hampiðjureitnum svokallaða við Stakkholt í Reykjavík. Fjárfestingin hljóðar upp á 4,3 milljarða króna og eru íbúðirnar ætlaðar á almennan leigumarkað. Framkvæmdir hófust á ný fyrr á þessu ári og eru nú í fullum gangi eftir að hlé sem var gert á þeim eftir hrun. „Við leggjum áherslu á minni íbúðir. Meðalstærðin á íbúðunum er 88 fermetrar en það er markaður fyrir íbúðum af þessu tagi,“ segi Þorvaldur Gissurason, forstjóri og eigandi ÞG verktaka sem sjá um framkvæmdina. „Áætlað er að fyrsta áfanga, með 70 íbúðum ljúki haustið 2014 en stefnt er að fullnaðarframkvæmdum ljúki vorið 2015.“ ÞG verktakar eru nú búnir að skrifa undir samning við fjármálafyrirtækið Centra fyrirtækjaráðgjöf ehf. sem vinna nú að því að kynna verkefnið fyrir helstu lífeyrissjóðum landsins. Árið 2011 var lögum breytt þannig að lífeyrissjóði er nú heimilt að stofna félag um rekstur íbúðarhúsnæðis og gera samning við einkaaðila um slíkan rekstur, þar á meðal fasteignum til útleigu. Lífeyrissjóðum er jafnframt heimilt að fjárfesta í íbúðarhúsnæði og halda því við yfirtöku.Sigurður Harðarson framkvæmdastjóri Centra„Þetta er einstakt verkefni því meðalstærð á íbúðum er í minni kantinum og gífurleg eftirspurn er eftir íbúðum hjá ungu fólki sem á ekki fyrir útborgun á eigin húsnæði,“ segir Sigurður Harðarson, framkvæmdastjóri og meðeigandi Centra. „Við höfum kynnt verkefnið fyrir stærstu lífeyrissjóðunum og nú eru þeir að kanna fýsileika fjárfestingarinnar,“ bætir Sigurður við sem segist jákvæður á útkomuna. „Centra er búið að gera samkomulag um kaupin á íbúðunum og ég hef fulla trú á því að lífeyrissjóðirnir eigi eftir að koma með fjármagn inní verkefnið. Það er eðlilegt að leiga sé valkostur fyrir alla og við stuðla að því.“ Sveinn Halldórsson, ráðgjafi lífeyrissjóðanna í húsnæðismálum segir að verulegur skortur sé á leiguíbúðum á höfðuborgasvæðinu. „Nú er mun erfiðara fyrir ungt og tekjuminna fólk að kaupa sér húsnæði og því vert fyrir lífeyrissjóðinna að kanna slíka fjárfestingamöguleika.“ segir Stefán en ítrekar þó að það sé ekki í hans verkahring að ákveða slíkt. „Nú hafa lífeyrissjóðirnir tekið höndum saman og eru að skoða mögulgea aðkomu þeirra að uppbyggingu leigumarkaðar. Svo er það þeirra að taka ákvörðun um einstök verkefni.“ Fréttablaðið fékk þau svör frá nokkrum lífeyrissjóðum að þetta einstaka mál hafi verið kynnt fyrir þeim en engar ákvarðanir hafi þó verið teknar um málið.
Mest lesið Sigurjón Árnason: Dómurinn óskiljanlegur, kolrangur og ekki í samræmi við lög og reglur Viðskipti innlent Rekstur innan fjárheimilda Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Fjárfestar leigja Raufarhólshelli og rukka inn Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Isavia kærir úrskurðinn Viðskipti innlent Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig? Atvinnulíf Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira
Sigurjón Árnason: Dómurinn óskiljanlegur, kolrangur og ekki í samræmi við lög og reglur Viðskipti innlent
Sigurjón Árnason: Dómurinn óskiljanlegur, kolrangur og ekki í samræmi við lög og reglur Viðskipti innlent