Þarf að setja skuldbindingar LSR inn í fjárlög Lovísa Eiríksdóttir skrifar 18. júlí 2013 07:00 Pétur H. Blöndal tryggingarfræðingur og þingmaður „
Með því að hækka iðgjaldið um eitt prósent um áramótin er verið að bregðast við skammtímavanda,“ segir Pétur Blöndal tyggingarfræðingur og Alþingismaður. Haukur Hafsteinsson framkvæmdastjóri Lífeyissjóða starfsmanna ríkisins (LSR), sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að nóg væri að hækka iðgjöld sjóðsins um eitt prósent um áramótin til að byrja með. Alvarleg staða hans hefur verið til umfjöllunar undarnfarna daga og segir Pétur Blöndal að mun stórtækari aðgerðir þurfi til að bregðast við vandanum. Pétur bendir á að samkvæmt lögum skuli stjórn lífeyrissjóðsins leggja til hækkun á iðgjaldi til þess að sjóðurinn standi undir sér. „Þetta hefur stjórnin aldrei gert og nú eru 60 milljarða króna skuldbindingar LSR búnar að safnast upp, auk um 400 milljarða króna skuldbindinga í lokuðum sjóði. Þetta er falin skuldbinding sem ekki er til í fjárlögum,“ segir Pétur og telur mikilvægast að stjórnvöld viðurkenni vandann strax. „Ef skuldbindingarnar eru ekki til í fjárlögum þá eru þær í raun ekki tryggðar. Í Stjórnarskránni segir að ekki megi greiða út fé úr ríkissjóði nema samkvæmt fjárlögum og þessar skuldbindingar finnast ekki í fjárlögum,“ segir Pétur sem telur brýnt að koma halla opinberra sjóða inn í fjárlög með einhverjum hætti sem fyrst. Hann segir að alla tíð hafi sjóðurinn átt að byggjast á söfnun til þess að standast skuldbindingar hvort sem um ræðir lokaðar eða opnar deildir sjóðsins og því sé staðan verulega alvarleg.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Starfsmenn Bílanausts sendir heim Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira