Segir árangurstengt launakerfi hafa verið eina kostinn í stöðunni Lovísa Eiríksdóttir skrifar 22. júlí 2013 07:00 Starfsmenn Landsbankans fá tæplega eins prósents hlut í bankanum samkvæmt árangurstengdu launakerfi bankans sem samið var um árið 2009.
Nýlega var tilkynnt að starfsmenn Landsbankans myndu eignast tæplega eins prósents hlut í bankanum. Afhending hlutabréfanna byggist á samningi frá 15. desember 2009 en þá gerðu gamli Landsbankinn, nýi Landsbankinn og íslenska ríkið samning um fjárhagsuppgjör. Með samþykki ríkisins var nýja Landsbankanum gert að koma á árangurstengdu launakerfi fyrir starfsmenn bankans. Steingrímur J. Sigfússon, þáverandi fjármálaráðherra, segir að þessi niðurstaða hafi verið sú skásta sem fékkst í samningaviðræðunum. „Upphaflega krafan frá erlendu kröfuhöfunum var að koma á árangurstengdu launakerfi fyrir einungis yfirmenn. Við höfnuðum því alfarið. Eftir mikið þóf varð niðurstaðan sú að kerfið tæki til allra starfsmanna bankans,“ segir Steingrímur og bendir á að þessar eignir sem ráðstafað er til starfsmanna bankans hafi í raun verið eignir kröfuhafa en ekki ríkisins. Á hluthafafundi í Landsbankanum hf. sem haldinn var 17. júlí síðastliðinn, voru staðfestar úthlutunarreglur um afhendingu hlutabréfa til starfsmanna. Aðalatriði afhendingar hlutabréfanna er að eignarhlutur rúmlega 1.400 núverandi og fyrrverandi starfsmanna í Landsbankanum hf. verði innan við eitt prósent. Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær að hún teldi óeðlilegt að hægt væri að ráðstafa eignum ríkisins með þessum hætti. „Ég velti fyrir mér hvort það sé lagastoð fyrir þessari úthlutun því þetta lítur út fyrir að vera nokkurs konar gjafagjörningur. Það er alveg klárt í fjárlögum að þegar á að selja ríkisfyrirtæki eða hluta úr ríkisfyrirtækjum þarf að færa slíka heimild í gegnum þingið,“ segir Vigdís sem telur gjörninginn siðlausan.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Starfsmenn Bílanausts sendir heim Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira