Eins og litskrúðug gjöreyðing Kristjana Arnarsdóttir skrifar 24. júlí 2013 07:00 Fyrirtækið Fancy Pants Global hefur sent frá sér tölvuleikinn Zorblobs. Viggó Ingimar sést hér klæddur eins og karakter úr leiknum. „
Leikurinn snýst í raun um greindarskertar geimverur sem svífa niður til jarðar og byrja að éta allt sem að kjafti kemst,“ segir Viggó Ingimar Jónasson hjá leikjafyrirtækinu Fancy Pants Global. Fyrirtækið hefur hannað leik fyrir iPhone og iPad en leikurinn minnir einna helst á teiknimynd og nefnist Zorblobs. „Spilarinn reynir að verja sig með því að skjóta úr fallbyssu og reynir þannig að bjarga mannkyninu frá gjöreyðingu. Þetta er samt ekki mjög alvarlegt „concept“, þetta er meira eins og litskrúðug gjöreyðing,“ segir Viggó. Fyrirtækið Fancy Pants Global var stofnað fyrir nokkrum árum. Fyrsti tölvuleikurinn sem fyrirtækið framleiddi, Maximus Musicus, var tilnefndur til tveggja verðlauna á norrænu leikjahátíðinni Nordic Game árið 2011. „Í kjölfarið fórum við svo að tala um að okkur langaði mikið að gera eitthvað með geimverum og uppvakningum. Zorblobs hefur mótast í kerfinu í um það bil tvö ár. Loksins tókst okkur að gefa leikinn út og við erum mjög lukkulegir með það,“ segir Viggó. Hann segir jafnframt að fyrirtækið bindi vonir við tölvuleikinn. „Við lögðum mikið upp úr því að skapa sögu í kringum þetta. Eftir nokkrar vikur ætlum við að gefa út fylgiforrit með leiknum sem verður fyrir iPad. Þar verður hægt að búa til sína eigin karaktera sem svo er hægt að skella á Facebook. Við verðum svo með samkeppni um hverjir búa til besta karakterinn og þegar við uppfærum leikinn fær karakterinn að fljóta með.“
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Starfsmenn Bílanausts sendir heim Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira