Tíska og hönnun

Vinsælar vintage búðir

Það er draumur flestra sem spá í tísku að eignast vintage Chanel-tösku
Það er draumur flestra sem spá í tísku að eignast vintage Chanel-tösku getty/nordicphotos
Breska tískutímaritið Grazia, tók nýlega saman þá staði þar sem flottustu vintage-búðirnar má finna. Margir sem kaupa sér notuð föt vilja finna eitthvað alveg einstakt sem enginn annar á. Merkjaflíkur frá hönnuðum eins og Chanel, Gucci og Louis Vuitton eru mjög eftirsóttar í þessum búðum.

Það þykir til að mynda algjör nauðsyn að eiga eina vintage Chanel-tösku ef menn eru á annað borð að pæla í tískunni. Blaðið setti saman lista sem hefur að geyma flottustu vintage-búðirnar og deilir með lesendum sínum.

Ef þú átt leið til Bandaríkjanna þá eru vintage-búðirnar C Madeleine' í Miami, Beacon's Closet í Brooklyn í New York og síðast en ekki síst Jat Rag í Los Angeleles, sem er þekkt fyrir vandaðan en jafnframt ódýran fatnað, efstar á lista.

Í París þykir nauðsynlegt að koma við á The Paris Fleamarket og í búðinni GoldyMama sem er rétt hjá markaðnum. Ef þú átt hins vegar leið um tískuborgina London mælir Grazia með að þú farir í Rellik sem er við Golborne Road og í búðina Blackout II í Covent Garden.

Ef þú átt leið til Bandaríkjanna þá eru vintage-búðirnar C Madeleine' í Miami, Beacon's Closet í Brooklyn í New York og síðast en ekki síst Jat Rag í Los Angeleles, sem er þekkt fyrir vandaðan en jafnframt ódýran fatnað, efstar á lista.

Í París þykir nauðsynlegt að koma við á The Paris Fleamarket og í búðinni GoldyMama sem er rétt hjá markaðnum. Ef þú átt hins vegar leið um tískuborgina London mælir Grazia með að þú farir í Rellik sem er við Golborne Road og í búðina Blackout II í Covent Garden






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.