Framarar æfa með KR Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. ágúst 2013 06:15 Magnús Gunnar og félagar fögnuðu þeim stóra í vor. Fréttablaðið/Valli
Guðjón Drengsson, Haraldur Þorvarðarson og Magnús Erlendsson æfa þessa dagana með meistaraflokki KR. Liðið leikur í 1. deild á næstu leiktíð en meistaraflokkurinn var endurvakinn hjá Vesturbæingum á vormánuðum. Guðjón var síðast á mála hjá Selfossi en lék ekkert á síðustu leiktíð vegna meiðsla. Haraldur og Magnús urðu hins vegar Íslandsmeistarar með Fram í vor. „Maður er byrjaður að mæta á æfingar hjá KR,“ segir Magnús sem hafði stefnt á að hætta. Hann segir Harald hafa platað sig til að kíkja á æfingar en góðvinur Haraldar, Arnar Jón Agnarsson, þjálfar liðið. Þá hefur Haraldur sterk tengsl við KR úr æsku. „Það er fjölskylduvænna að æfa tvisvar til þrisvar í viku og spila,“ segir Magnús sem einnig hefur litið inn á æfingar hjá Fram til að halda sér við. „Ég ætlaði að hætta og er þannig séð hættur. Ég velti fyrir mér að spila í utandeildinni en svo eru lið sem eru tilbúin að leyfa manni að vera í þessu á eigin forsendum,“ sagði Magnús. Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvort þremenningarnir spili með KR í vetur. Ellefu lið verða í 1. deildinni í vetur eða þremur fleiri en á síðustu leiktíð. Auk KR-inga senda Hamrarnir frá Akureyri lið til keppni og sömuleiðis ÍH úr Hafnarfirði. Fyrsta umferðin verður leikin föstudagskvöldið 20. september.
Íslenski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira