Seðlabanki sagður linur í verðbólguslag Lovísa Eiríksdóttir skrifar 22. ágúst 2013 09:45 Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, og Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri kynntu vaxtaákvörðun bankans í gær. Fréttablaðið/Stefán
Ásdís Kristjánsdóttir „Tónninn er ekki eins harður og við höfðum gert ráð fyrir og ég hélt að nefndin myndi koma með meiri sýn á það hver stefna þeirra verður með haustinu. Við veltum því fyrir okkur hvort sú leikáætlun sem lagt var af stað með í vor sé að virka sem skyldi,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Arion banka, um þá ákvörðun Seðlabanka Íslands að halda stýrivöxtum óbreyttum. Ásdís segir að Seðlabankanum hafi ekki tekist að endurheimta þann gjaldeyri sem nýttur hefur verið til að styðja við krónuna. Þá hafi horfurnar ekki skánað úti í heimi og viðskiptakjör séu að versna enn frekar, þannig að útlitið sé ekki gott. Hún telur erfiða kjarasamninga fram undan. „Við teljum að peningastefnunefndin hefði mátt vera skýrari um hvers megi vænta ef við sjáum hér óhóflegar launahækkanir í vetur,“ bætir Ásdís við. Seðlabanki Íslands tilkynnti í gær að vöxtum bankans yrði ekki breytt þrátt fyrir svarta verðbólguspá.Ingólfur BenderGreiningaraðilar undrast mildi yfirlýsingarinnar og segjast hafa búist við harðari viðbrögðum við lakari verðbólguvæntingum og versnandi horfum. „Mér þykir undarlegt af hverju þeir gefa ekki meira undir fótinn með hækkun á stýrivöxtum á næstunni til þess að ná þessum væntingum niður og þannig lenda málinu á skynsamlegum nótum,“ segir Ingólfur Bender, yfirmaður Greiningar Íslandsbanka. „Mér þykir bankinn taka á versnandi verðbólguhorfum með linkind.“ Bæði greiningardeild Íslandsbanka og greiningardeild Arion banka spá því að verðbólgan verði komin yfir fjögur prósent með haustinu, en það er yfir svokölluðum vikmörkum Seðlabankans um verðbólgumarkmið. Seðlabankinn er ekki jafn svartsýnn í verbólguspá sinni. Fram kemur í yfirlýsingu peningastefnunefndar að verðbólga muni aukast lítillega á seinni hluta ársins og hjaðna á ný í átt að markmiði í byrjun næsta árs. Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri sagði að bankinn þyrfti að horfa á verðbólguþróun til lengri tíma og að ekki væri hægt að bregðast við launaþróun fyrir fram. Ingólfur Bender bendir þó á að aðilar vinnumarkaðarins miði sínar kröfur við verðbólguvæntingar og því þurfi einmitt að bregðast við aukinni verðbólgu áður en gengið er til kjarasamninga. „Ef maður les í orð og aðgerðir bankans virðast þeir ekki vera að bregðast við slæmum horfum.“
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Upphrópanir um bónusa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira