14 þúsund tonna aukning í þorski á milli fiskveiðiára Haraldur Guðmundsson skrifar 3. september 2013 07:00 Brimnes RE 27, skip í eigu Brims hf., fær 9.500 þorskígildistonn. Fréttablaðið/Anton Brink
Fiskveiðiárið 2013/2014 hófst formlega á sunnudag þegar Fiskistofa úthlutaði aflamarki til 627 skipa. Fiskistofa úthlutaði að þessu sinni 381.431 tonni í þorskígildum talið, samanborið við 348.553 tonna úthlutun á síðasta fiskveiðiári. Í tilkynningu á heimasíðu Fiskistofu kemur fram að úthlutunin sé 33 þúsund tonnum meiri en í fyrra, þegar aflamark síðasta árs er reiknað í þorskígildum nýhafins fiskveiðiárs. Aukningin er mest í úthlutun í þorski. Aflamark slægðs þorsks er 171 þúsund tonn og hækkar um fjórtán þúsund tonn á milli fiskveiðiára. Úthlutun í síld hækkar einnig, um sextán þúsund tonn, en síðar á árinu verður úthlutað aflamarki úr deilistofnum og þá er líklegt að aukið verði við aflamark í uppsjávartegundum. Úthlutun í gullkarfa hækkar um sex þúsund tonn og í ufsa um þrjú þúsund tonn. Aftur á móti lækkar aflamark grálúðu um rúm tvö þúsund tonn á milli ára.Þrjár nýjar kvótategundir er að finna í úthlutun Fiskistofu. Þær eru blálanga, gulllax og litli karfi. Aðeins er úthlutað 80% aflamarksins í þeim tegundum og í tilkynningu Fiskistofu segir að afganginum verði úthlutað þegar útgerðir, sem telja sig búa yfir aflareynslu, hafa gert athugasemdir við upphafsúthlutunina. Fimmtíu stærstu útgerðarfyrirtækin fá úthlutað um 328 þúsund tonnum, eða sem nemur um 86% af úthlutuðu heildaraflamarki. Sömu þrjú útgerðarfyrirtækin mynda röð efstu fyrirtækja og undanfarin ár. HB Grandi fær mestu úthlutað, eða 11% af heildinni. Þar á eftir koma Samherji á Akureyri með 6,8% og Þorbjörn hf. í Grindavík með 5,5% af heildinni. Mest aflamark fer til Brimness RE 27, rúm 9.500 þorskígildistonn, en skipið er í eigu Brims hf. Þegar tölur um úthlutun eftir heimahöfnum eru skoðaðar sést að þrjár hafnir skera sig úr öðrum. Skip með heimahöfn í Reykjavík fá mest aflamark, eða 13,3% af heildinni. Næstmest fá skip með heimahöfn í Vestmannaeyjum, eða 11,2% og þar á eftir skip með heimahöfn í Grindavík, sem fá 8,4% af heildinni.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Upphrópanir um bónusa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira