Mesti fjöldi ferðamanna frá upphafi Óli Kristján Ármannsson skrifar 6. september 2013 14:46 Í Leifsstöð Fréttablaðið/Pjetur
Um 132 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í nýliðnum ágústmánuði, samkvæmt því sem kemur fram í nýbirtum tölum Ferðamálastofu. Eru þetta um 16.500 fleiri ferðamenn en í ágúst í fyrra. „Aukningin nemur 14,4 prósentum milli ára og er þetta metfjöldi ferðamanna í einum mánuði.“ Ef litið er til fjölda ferðamanna í ágúst á því tólf ára tímabili (2002-2013) sem Ferðamálastofa hefur haldið úti talningum má sjá umtalsverða fjölgun ferðamanna. „Þannig hefur ferðamönnum fjölgað um 81 þúsund á tímabilinu, farið úr 50 þúsundum árið 2002 í 132 þúsund árið 2013. Aukningin hefur verið að jafnaði 9,3 prósent milli ára en sveiflur hafa hins vegar verið talsvert miklar milli ára,“ segir í umfjöllun Ferðamálastofu. Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í ágúst frá Bandaríkjunum (14,7 prósent), Þýskalandi (14,0 prósent), Frakklandi (9,8 prósent) og Bretlandi (7,7 prósent). Þar á eftir komu Ítalir (4,8 prósent), Norðmenn (4,6 prósent), Spánverjar (4,6 prósent), Danir (4,2 prósent) og Svíar (3,8 prósent). „Samtals voru þessar níu þjóðir um tveir þriðju (68,2 prósent) ferðamanna í ágúst.“ Af einstaka þjóðum er Bandaríkjamönnum, Bretum og Þjóðverjum sagt hafa fjölgað mest milli ára í ágúst. Þannig komu 3.584 fleiri Bandaríkjamenn í ágúst ár, 2.431 fleiri Bretar og 1.824 fleiri Þjóðverjar. "Þegar aukning er skoðuð eftir einstaka markaðssvæðum milli ára má sjá að Norðurlandabúar standa í stað. 31,2 prósenta aukning er á Bretum, 27,8 prósenta aukning frá löndum sem flokkuð eru undir annað, 18,3 prósenta aukning á N-Ameríkönum og 9,7 prósenta aukning á Mið- og S-Evrópubúum." Bent er á að Mið- og S-Evrópa sé langstærsta markaðssvæðið í ágúst, eða um 40 prósent af heild, þannig að talið í fjölda ferðamanna sé aukningin mest þaðan. "Frá áramótum hafa 566.762 erlendir ferðamenn farið frá landinu, um 94 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra," segir Ferðamálastofa, en aukningin nemur fimmtungi á milli ára. Um 36 þúsund Íslendingar fóru utan í ágúst eða 250 færri en í ágúst í fyrra. „Frá áramótum hafa um 240 þúsund Íslendingar farið utan, um 2.500 færri en á sama tímabili árið 2012. Fækkunin nemur 1,0 prósenti milli ára.“ Finna má nánari upplýsingar um talningu ferðamanna á vef Ferðamálastofu.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Atvinnulíf Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira