Hækkun ellilífeyrisaldurs sögð blasa við Óli Kristján Ármannsson skrifar 4. október 2013 07:00 Í febrúar í fyrra var kynnt skýrsla sem lífeyrissjóðirnir létu vinna um stöðu þeirra og starfsemi fyrir hrun. Þeir fóru ekki að rétta úr kútnum eftir hrunið fyrr en á síðasta ári. Sá bati er ekki sagður duga til. Fréttablaðið/GVA
lVið blasir að við vanda lífeyrissjóða þurfi að bregðast með því að hækka ellilífeyrisaldur. Þetta segir í nýrri úttekt efnahagsritsins Vísbendingar. Bent er á að til dæmis mætti seinka töku lífeyris um einn eða tvo mánuði á hverju ári næstu árin. Hjá fjölda lífeyrissjóða munar töluverðu á að þeir fái staðið undir framtíðarskuldbindingum og margir hafa skert réttindi sjóðsfélaga. Ávöxtun lífeyrissjóða er sögð hafa sveiflast mikið á liðnum árum. „Hún var auðvitað neikvæð árið 2008 og hefur ekki verið viðunandi síðan fyrr en árið 2012 þegar raunávöxtun var 7,4 prósent,“ segir í Vísbendingu. Ávöxtunin skili sér þó ekki í jafnmiklum bata og mátt hefði ætla og er enn sögð óviðunandi, lífslíkur hafi batnað hér á landi og skuldbindingar sjóðanna því aukist um 1,0 til 1,5 prósent. „Á næstu 15 árum mun því álagið á bæði lífeyriskerfið og almannatryggingakerfið aukast ár frá ári. Eignir lífeyrissjóðanna eru miklar en það mun valda vandræðum þegar að því kemur að selja þær í lokuðu kerfi þar sem allir vilja selja samtímis,“ segir í efnahagsritinu. Haldist hér áfram gjaldeyrishöft og hagvöxtur verður lítill geti sjóðirnir ekki ávaxtað fé með eðlilegum hætti. Fé þeirra dugi því ekki eins og ráð hafi verið fyrir gert. „Þetta er hluti af þeim vítahring sem Íslendingar kunna að lokast inni í ef engar raunhæfar lausnir finnast á gjaldeyrisvanda þjóðarinnar,“ segir í Vísbendingu. Í umfjölluninni er líka fjallað um muninn á stöðu sjóða á almennum vinnumarkaði og hjá því opinbera. Hjá almennu sjóðunum sé heildarhallinn 99 milljarðar og fari minnkandi frá 2011 en halli hjá sjóðum ríkis og sveitarfélaga sé um 574 milljarðar króna. Til þess að rétta hallann á B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) er bent á að ríkið þyrfti að leggja um átta milljarða króna til sjóðsins á ári og hefja þá innlögn þegar í stað, en að auki greiddu launagreiðendur svipaða innlögn vegna hækkaðra lífeyrisgreiðslna. Verði ekkert að gert sé líklegt að ríkið þurfi að greiða um tvöfalt hærri fjárhæð eftir 10 til 15 ár. Um leið skorti merki um úrbætur. „Fjármálaeftirlitið úrskurðaði að LSR A-deild bæri að hækka iðgjaldið úr 15,5 prósentum í 19,5 prósent. Stjórnvöld, sem hafa gagnrýnt einkaaðila fyrir það að fara ekki að tilmælum eftirlitsins, hafa ákveðið að breyta lögum til þess að þurfa ekki að fara að þessu árið 2014.“
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira