Uppgjörin flutt hingað til lands Óli Kristján Ármannsson skrifar 10. október 2013 12:38 Jóhannes Ingi Kolbeinsson er framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar. Fréttablaðið/Arnþór
Með því að Kortaþjónustan varð fyrir skömmu fullgildur aðili að alþjóðlegu greiðslukortafyrirtækjunum VISA Europe og Mastercard International getur fyrirtækið annast bæði uppgjör debet- og kreditkorta hér á Íslandi. Áður fór uppgjör fram í gegnum danska fyrirtækið Teller. Fram kemur í tilkynningu að Kortaþjónustan hafi samið upp á nýtt við viðskiptavini sína og sinni nú kortauppgjöri í eigin nafni. „Er nú langstærstur hluti uppgjöranna framkvæmdur beint hér á landi á vegum Kortaþjónustunnar,“ segir þar. Með þessu fyrirkomulagi segistKortaþjónustan geta veitt viðskiptavinum sínum betri og sveigjanlegri þjónustu en áður, enda fari öll þjónustan fram innan fyrirtækisins. „Meðal nýjunga er að Kortaþjónustan getur nú boðið viðskiptavinum val milli þess að fá dagleg, vikuleg eða mánaðarleg uppgjör.“ Frá stofnun hefur Kortaþjónustan séð um bæði sölu og þjónustu hér á Íslandi, en stofnaði til samstarfs við Teller varðandi bakvinnsluþjónustu og tengingar við kerfi Visa og Mastercard. „Með þessu skrefi nú er milliliðum því fækkað, sem leiðir til aukinnar hagkvæmni. Um leið verður Kortaþjónustan enn samkeppnishæfari og mun til að mynda geta þjónustað stærri fyrirtæki en áður á íslenska markaðnum.“ Jóhannes Ingi Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar, segist stoltur á þessum tímamótum. „Samstarfið við Teller hefur gengið vel í gegnum tíðina en nú stígum við rökrétt næsta skref í þróun Kortaþjónustunnar og styrkjum stöðu okkar. Það er jákvætt fyrir íslenska greiðslukortamarkaðinn í heild því dæmin sanna að það er nauðsynlegt að hafa sterkan og óháðan þriðja aðila til að samkeppni ríki á þessum markaði,“ er eftir honum haft.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira