Hagkvæmari rekstur einkabílsins 30. október 2013 13:23 Langtímaleiga er góður valkostur sem býður upp á hagkvæmari og einfaldari rekstur einkabílsins, segja Ólöf Sif Þráinsdóttir og Ófeigur Friðriksson, viðskiptastjórar hjá Avis bílaleigu. mynd/Daníel
Bílamarkaður hérlendis hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár. Bæði almenningur og fyrirtæki eru sífellt meira að átta sig á því að lítið vit er að fjárfesta í dýrum bílum sem auk þess eyða miklu og menga mikið. Ófeigur Friðriksson og Ólöf Sif Þráinsdóttir, sem bæði starfa sem viðskiptastjórar hjá Avis bílaleigu, benda á að á flestum heimilum landsins er bíllinn stærsti útgjaldaliðurinn á eftir húsnæðiskostnaði. „Það er ekki nóg með að bíllinn sé dýr í rekstri heldur hafa sviptingar á gengis- og lánamörkuðum síðustu árin kennt mörgum að bílakaupum getur fylgt mikil áhætta og veruleg fjárhagsleg ábyrgð,“ segir Ófeigur. Aðrir bíleigendur hafa lært þá dýru lexíu að flókið sé að reikna dæmið til enda þegar kemur að bílakaupum; afborganir af lánum eru bara hluti af kostnaðinum og á þá eftir að gera ráð fyrir verðrýrnun, viðhaldi, bifreiðatryggingum, opinberum gjöldum og endursöluáhættunni. Að sögn Ólafar er því langtímaleiga góður valkostur sem hjálpar til við að gera rekstur einkabílsins bæði hagkvæmari, fyrirsjáanlegri og jafnvel einfaldari. „Langtímaleigan sækir á með hverju árinu. Þessi valkostur hentar stórum hópi fólks, hvort sem það getur ekki eða vill ekki taka bílalán og svo hins vegar þeim sem ekki vilja leggja út fyrir stórri innborgun eða greiða nýjan bíl út í hönd.“ Þau benda á að langtímaleiga sé í raun hugarfarsbreyting hjá fólki. „Langtímaleiga er ákjósanlegur kostur fyrir marga og gerir það mögulegt að fá bíl á heimilið án nokkurrar fjárfestingar. Einungis er greidd leiga mánaðarlega. Auk þess hafa margir slæma reynslu af kaupleigusamningum þar sem þeir hafa fengið óvænta og háa bakreikninga vegna minniháttar skemmda.“Langtímaleiga er ákjósanlegur kostur fyrir marga og gerir það mögulegt að fá bíl á heimilið án nokkurrar fjárfestingar.Ef viðskiptavinir vilja hætta í viðskiptum áður en samningurinn er á enda þarf einungis að greiða tveggja mánaða uppgreiðslugjald. „Síðan er einfalt mál að skipta um bíl á samningstímanum, ef til dæmis breytingar verða á fjölskylduhögum.“ Hámarksleigutíminn er þrjú ár og er lágmarkslengdin einn vetur. Viðskiptavinir geta valið bíla úr öllum flota Avis bílaleigu en þar er hægt að finna yfir 60 ólíkar tegundir af bílum. Um fjórðungur bílaflotans er vistvænn en sá hluti fer stækkandi í takt við aukna umhverfisvitund viðskiptavina, að sögn Ófeigs og Ólafar. Til að nefna dæmi um mánaðargreiðslur nefna þau að bíll á borð við Hyundai i10 kosti frá 46.900 kr. á mánuði. Innifalið í þeim samningi eru allt að 20.000 km. á hverju 12 mánaða tímabili sem er í samræmi við árlegan meðalakstur innanbæjar. Auk þess inniheldur leigan árstíðabundin dekkjaskipti, eftirlit, olíuskipti, viðhald, bifreiðagjöld og tryggingar, þar með talið kaskótryggingu. „Það eina sem leigjandinn greiðir er það bensín sem er notað við aksturinn. Ekki er um neina innborgun að ræða eða aukagreiðslur af nokkrum toga en leiguverðið er tengt við vísitölu neysluverðs.“ Viðskiptavinir í langtímaleigu geta einnig fengið afnot af stærri bílum á góðum kjörum ef halda þarf út fyrir bæinn eða skjótast milli landshluta yfir veturinn.
Mest lesið Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Jaguar Land Rover stöðvar sendingar vegna tollahækkana Viðskipti erlent Trump boðar „stórfellda“ tolla á lyf en Róbert hefur ekki áhyggjur Viðskipti erlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira