Tónlist

Sónar verði ein sú besta í Evrópu

Freyr Bjarnason skrifar
Hátíðin Sónar Reykjavík verður haldin í annað sinn í febrúar á næsta ári.
Hátíðin Sónar Reykjavík verður haldin í annað sinn í febrúar á næsta ári. Fréttablaðið/Stefán
Björn Steinbekk, skipuleggjandi Sónar Reykjavík, stefnir á að gera hátíðina að einni af mest spennandi litlu tónlistarhátíðunum í Evrópu á næstu fimm árum.

„Þessi stefna mín er hluti af ástæðunni fyrir því að eigendur Sónar leggja sig jafn mikið fram og raun ber vitni við að fá hingað listamenn sem eru heitir hverju sinni,“ segir Björn.

Á næstu Sónar-hátíð, sem verður haldin er í annað sinn í Hörpu í febrúar, hafa meðal annars verið bókaðir Paul Kalkbrenner, Bonobo, Starwalker, Hjaltalín og Major Lazer en í spilaranum hér fyrir neðan má sjá myndbandið við lag hans Watch Out For This (Bumaye). Fyrr á árinu voru Squarepusher og James Blake á meðal gesta.

Til að þessi áætlun Björns gangi upp er ljóst að hækka gæti þurft miðaverðið á næstu árum. Núna er það 17.900 krónur en gæti farið nálægt því verði sem er algengt á þriggja daga tónlistarhátíðum erlendis sem er rúmlega 20.000 kr. Þetta veltur mikið á vexti Sónar Stockholm sem fer fram í fyrsta skipti á sama tíma og Sónar Reykjavík. Ef sú hátíð vex í samræmi við væntingar gætu samlegðaráhrifin verið slík að miðaverð haldist svipað og í dag.

„Það er ljóst að markaður fyrir þetta miðaverð á Íslandi er lítill og þess vegna er mikilvægt að við vinnum vel með aðilum í ferðaiðnaði og þeim sem markaðssetja Ísland erlendis til að ná þeim fjölda erlendra fjölda gesta sem til þarf,“ segir hann.

Einn liður í þessu markmiði er ráðstefnan Sónar Pro sem hefst í Hörpu 2015. Þar verður fjöldi erlendra áhrifamanna úr tónlistarbransanum á meðal gesta.

Um 3.000 miðar seldust á Sónar Reykjavík í febrúar. Útlendingar voru þriðjungur gestanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.