Tók að sér hlutverk hjá Blomkamp 30. október 2013 19:00 Leikkonan Sigourney Weaver fer með hlutverk í nýrri kvikmynd leikstjórans Neills Blomkamp. Nordicphotos/getty
Leikkonan Sigourney Weaver hefur tekið að sér hlutverk í nýrri kvikmynd suðurafríska leikstjórans Neills Blomkamp, Chappie. Hugh Jackman, Dev Patel, Ninja, Yolandi Visser úr hljómsveitinni Die Antwoord, Jose Pablo Cantillo og Brandon Auret fara með helstu hlutverk myndarinnar. Myndin segir frá vélmenni sem rænt er af tveimur glæpamönnum og elst upp hjá stórfurðulegri fjölskyldu, en vélmennið, sem er piltur, er gætt einhvers konar náðargáfu. Sharlto Copley, náinn samstarfsmaður Blomkamp, mun ljá vélmenninu rödd sína. Blomkamp skrifaði handrit myndarinnar ásamt Terri Tatchell og fara tökur fram í Jóhannesarborg. Blomkamp á að baki kvikmyndir á borð við District 9 og Elysium. Ekki er vitað hvaða hlutverk Weaver mun fara með í Chappie, en leikkonan er enginn nýgræðingur þegar kemur að því að leika í myndum sem eiga sér stað í framtíðinni. Þekktust er Weaver fyrir hlutverk Ripley í Alien-kvikmyndunum.
Mest lesið Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Lífið Ísrael sendir kvörtun til EBU Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Lífið Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Lífið Í kossaflensi á Beyoncé Lífið Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Lífið Arnar og Sara gáfu syninum nafn Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Lífið Fleiri fréttir Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira