Viðskiptakjör landsins ekki verri síðan 1964 Óli Kristján Ármannsson skrifar 7. nóvember 2013 07:00 Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, kynnir Peningamál, efnahagsrit bankans. Fréttablaðið/Daníel
Viðskiptakjör inn- og útflutnings Íslands eru í sögulegu lágmarki og ráð gert fyrir áframhaldandi rýrnun þeirra á næstu ár. „Aðallega vegna lægra sjávarafurðaverðs,“ segir Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans. Hann kynnti þjóðhagsspá bankans á fundi í Seðlabankanum í gær. „Viðskiptakjörin hafa verið okkur afar óhagstæð og hafa nú rýrnað um 17 prósent frá árinu 2007,“ sagði Þórarinn og kvað kjörin ekki hafa verið jafnslæm síðan 1964. „Eftir að efnahagskreppan skall á núna fyrir nokkrum árum þá hafa þau nánast samfellt verið að rýrna.“ Í umfjöllun í Peningamálum kemur fram að í fyrra hafi viðskiptakjör landsins verið um sjö prósentum undir því sem þau hafa að meðaltali verið frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Bankinn gerir ráð fyrir að viðskiptakjör haldi áfram að rýrna á spátímabilinu sem nær til ársins 2016, og verði þá komin ellefu prósent undir langtímameðaltal. Rýrnunina megi fyrst og fremst rekja til slaks hagvaxtar í helstu viðskiptalöndum Íslands og mikillar lækkunar á verði sjávarafurða. Þróun viðskiptakjara segir Þórarinn að skýri að nokkru leyti hvers vegna efnahagsbati hér hafi verið jafnhægur og raun ber vitni. Þróunin hafi grafið undan gengi krónunnar og gert úrlausn núverandi greiðslujafnaðarvanda erfiðari en ella.
Mest lesið Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira