Ævintýri flóttamanna Halla Þórlaug Óskarsdóttir skrifar 17. desember 2013 13:00 Strokubörnin á Skuggaskeri eftir Sigrúnu Eldjárn
Bækur: Strokubörnin á Skuggaskeri Sigrún Eldjárn Mál og menning Sigrún Eldjárn er fyrir löngu orðin kunn fyrir barnabækur sínar, enda hefur hún sent frá sér bók næstum árlega frá árinu 1980. Það eru því fleiri en ein kynslóð sem hafa alist upp með sögunum hennar. Nýjasta afurðin er Strokubörnin á Skuggaskeri sem kom út á haustmánuðum. Um er að ræða hápólitíska bók sem sett er fram í ævintýraformi. Sagan segir frá íbúum Fagradals, en áin Silfra aðskilur þar þorpin Austurhlíð og Vesturhlíð. Einu sinni voru íbúarnir miklir vinir og börnin léku sér saman óáreitt. Nú er hins vegar skollið á stríð milli þorpanna því verðmætur málmur fannst í Hólminum, sem liggur í ánni á milli þorpanna. Systkinin Lína, Hringur, Anna og Beta bregða því á það ráð að strjúka úr Austurhlíð yfir í Skuggasker, sem er drungalegt sker lengra úti á hafi. Þar bíða þeirra óvænt ævintýri, þau þurfa að bjarga sér sjálf og ekki er allt sem sýnist. Sagan er sögð frá mismunandi sjónarhornum. Fyrst fylgjumst við með fyrrnefndum systkinum en svo bætast fleiri sjónarhorn við í næstu köflum. Á milli kaflanna þar sem frásögnin er í þriðju persónu eru kaflar þar sem sagt er frá í fyrstu persónu. Spennuþrungin leynd ríkir yfir þeim einstaklingi, en smám saman flettist ofan af honum. Þessir kaflar auka enn fremur á spennu bókarinnar. Bókin er auðlesin og fallega uppsett. Myndlýsingar Sigrúnar eru vandaðar og þar er hvergi til sparað því næstum hver einasta opna er myndskreytt. Textinn er í mismunandi lit eftir því hvert sjónarhornið er. Það er vel heppnað og truflar alls ekki lesturinn. Höfundi tekst vel að heimfæra aðstæður á íslenska staðarhætti, þannig að börn skilja að stríðshrjáð börn eru ekkert öðruvísi en þau sjálf, þó þau séu kannski langt í burtu. Stríð er ekki sameiginleg ákvörðun íbúa þeirra landa sem eiga hlut að máli. Sögulok gefa til kynna að lesendur megi vænta framhalds og gera má ráð fyrir að eftirvænting hefjist um leið og lestri lýkur.Niðurstaða: Afar vel heppnuð og spennandi bók sem varpar ljósi á fáránleika stríðs og hvernig það getur haft áhrif á hugsunarhátt stríðshrjáðra þjóða.
Gagnrýni Mest lesið Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Lífið Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Lífið Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Menning Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Lífið Þrír fulltrúar Íslendinga í hópi topp 20 undir 30 Menning Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Lífið Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Lífið „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Lífið „Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Enginn venjulegur sjötugur maður Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Lítið kjöt á beinum rándýrsins Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Sjá meira