Vilja fella niður gjaldtöku fyrir tollkvóta Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 18. desember 2013 07:00 Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir skynsamlegt að hverfa frá hindrunum sem draga úr samkeppni.
Atvinnuveganefnd Alþingis gerir ekkert með umsagnir Samkeppniseftirlitsins og hagsmunasamtaka, þar sem lagt er til að kerfi tollkvóta á innflutning landbúnaðarafurða verði endurskoðað. Fyrir Alþingi liggur frumvarp landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra sem miðar að því að sníða vankanta af breytingum á tollalögum sem voru gerðar í fyrra, eftir að umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að heimildir ráðherra til að ákveða tolla á innflutningskvóta brytu í bága við stjórnarskrá. Stefna stjórnvalda er að vernda innlenda landbúnaðarframleiðslu með háum innflutningstollum. Samkvæmt samningum Heimsviðskiptastofnunarinnar (WTO) má þó flytja inn lítið magn búvöru á lægri tollum. Stjórnvöld hafa hingað til úthlutað tollkvótunum með uppboði, sem þýðir að sá sem býður hæst fær að flytja inn vöruna, en hún verður dýrari fyrir vikið. Klúðrið sem lagabreytingin í fyrra orsakaði felst í að „tollur á dýrari vörur verður umtalsvert hærri en á ódýrari vörur“ eins og segir í greinargerð frumvarpsins. Reikniformúlan sem lögin kveða á um leiddi af sér að tollur á dýru nautakjöti, sem mátti flytja inn vegna kjötskorts, varð hærri en reglugerðir WTO og samningar Íslands við Evrópusambandið kveða á um. Þetta er reynt að lagfæra í nýja frumvarpinu, meðal annars með því að kveða á um að magntollur á vörum sem fluttar eru inn á lægri tollum verði aldrei meira en 45% af almennum magntolli samkvæmt tollskrá. Þetta atriði gagnrýna Bændasamtök Íslands í umsögn um frumvarpið. „Krónan kann að styrkjast á næstu misserum og eftir því sem hún styrkist gagnvart erlendum gjaldmiðlum kann sú staða að koma upp að tollverndin kunni að rýrna.“ Í umsögn Samkeppniseftirlitsins er lagt til að horfið sé alveg frá tollum. „Við teljum skynsamlegt fyrir alla að hverfa frá þessum hindrunum. Þær eru til þess fallnar að draga úr samkeppni og samkeppni er forsenda þess að framleiðni náist og góður rekstur,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. „Þetta eru hagsmunir neytenda og framleiðenda. Því auðvitað er hagur bænda að búa í haginn fyrir samkeppni.“ Ef ekki stendur til að afnema innflutningshömlur kemur Samkeppniseftirlitið með tillögu að úrbótum. „Við teljum koma til greina að úthlutun verði endurgjaldslaus og eftir atvikum hlutkesti varpað ef umsóknir eru umfram kvóta,“ segir Páll.
Mest lesið Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira