Já halda 118 í hálft annað ár Þorgils Jónsson skrifar 23. desember 2013 09:15 Já upplýsingaveitur fá að halda þriggja stafa símanúmeri út júní árið 2015. Samkeppnisaðilar eru ósáttir við það.
Já upplýsingaveitur munu þurfa að hætta með númerið 118 um mitt ár 2015, eftir að Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) afturkallaði leyfi til notkunar á númerinu á föstudag um leið og alþjónustukvöðum var aflétt af fyrirtækinu. Andri Árnason, framkvæmdastjóri Miðlunar sem rekur Gulu línuna í samkeppni við Já, er hins vegar ósáttur við að Já skuli fá að halda þriggja stafa númeri svo lengi.Sigríður Margrét OddsdóttirSigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já, segist fagna ákvörðuninni þó að hún feli í sér rask. „Í sjálfu sér hefur þessi úrskurður engin áhrif á okkar starfsemi,“ segir Sigríður og bætir því við að hún hafi verið viðbúin niðurstöðunni. „Við munum að sjálfsögðu halda áfram að gefa út Símaskrána, reka ja.is og bjóða upp á þjónustuna sem við veitum í 118, þó að við séum ekki með kvaðir á okkur. Undanfarin ár höfum við lagt mjög mikið á okkur til að vekja athygli á númerinu okkar, þannig að það segir sig sjálft að það felur í sér ákveðna röskun fyrir okkur að hætta með það. Við munum hins vegar svara í 118 út júní 2015 en munum samhliða svara í 1818 og nota það númer í framhaldinu.“ Aðspurð segir Sigríður að ekki hafi verið rætt um að draga úr þjónustu fyrirtækisins eða fækka starfsfólki. „Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um slíkt.“ Andri segir ákvörðun PFS ganga allt of skammt. Gula línan sé með fjögurra stafa númer, 1800, og það hafi skekkjandi áhrif á samkeppnisstöðu að Já fái eitt fyrirtækja að nota þriggja stafa númer. „Þetta er galin ákvörðun og huglaus hjá fjarskiptayfirvöldum. Þeir hefðu, reglum samkvæmt, mátt hafa árs fyrirvara til að leggja niður þriggja stafa númerið en þess í stað er það eitt og hálft ár. Ég get ekki lesið annað í þetta en að þetta sé gert til að friða Já.“ Andri deilir einnig á að í úrskurðinum sé ekki minnst á að bæta aðgengi annarra fyrirtækja að notendagögnum símafyrirtækjanna sem Já býr nú yfir. PFS og Samkeppniseftirlitið hafa áður sagt að samkeppni geti ekki skapast á þessum markaði að óbreyttu því hrágögn frá símafyrirtækjunum séu ófullkomin. „Þrátt fyrir það er ekkert gert í þeim málum,“ segir Andri, sem ætlar að reyna að ná fundi með PFS í dag.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira