Ráðherra lagði á dögunum til ný mörk að friðlýsingu Þjórsárvera. Ákvörðun hans hefur verið gagnrýnd þar sem hún er sögð opna fyrir framkvæmdir við Norðlingaöldu en hún var sett í verndarflokk í vor.
Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfisráðherra sagði í Kastljósi í gær ætla að virða niðurstöðu fagmanna í verkefnastjórn um rammaáætlun. Komist þeir að þeirri niðurstöðu að fórna megi fossum í Þjórsá þá virði hann það.
Nokkuð sérstakt viðhorf hjá umhverfisráðherra sem maður í einfeldni sinni hélt að ætti svona aðeins að standa upp fyrir íslenskri náttúru og hafa hennar hagsmuni í huga.

Ekki er augljóst hvað umhverfisráðherra á við þegar hann talar um fagmenn í sambandi við þessar framkvæmdir. Hverjir eru það? Eru það starfsmenn Landsvirkjunar sem vantar fleiri verkefni, jarðvísindamenn sem gert hafa rannsóknir á náttúrunni að ævistarfi, Ómar Ragnarsson eða Guð almáttugur skapari himins og jarðar sem hefði nú getað minnst eitthvað á umhverfissjónarmið í víðfrægu riti sínu sem kom út í tveimur testamentum og til er á flestum heimilum?
Þegar umhverfisráðherra talar um fórnir þá væri ágætt að fá það með, á hvaða altari verið er að færa slíka fórn. Maður gæti óvart haldið að það væri altari græðginnar.