VÍB í samstarf við BlackRock Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 8. janúar 2014 08:54 Samstarfið er liður í stefnu VÍB að bjóða viðskiptavinum sterkt vöru- og þjónustuframboð. Mynd/Valli
Eignastýringarþjónusta Íslandsbanka, VÍB, hefur undirritað samstarfssamning við BlackRock, stærsta eignastýringaraðila heims. BlackRock er með um 3.800 milljarða Bandaríkjadala í stýringu og starfsemi í 30 löndum. Starfsmenn BlackRock eru yfir tíu þúsund talsins og margir af stærstu lífeyrissjóðum og tryggingafélögum heims nýta eignastýringarþjónustu BlackRock. Í tilkynningu frá Íslandsbanka er haft eftir Stefáni Sigurðssyni, framkvæmdastjóra VÍB, þar sem hann segist mjög stoltur af því að BlackRock hafi valið þau til samstarfs á Íslandi. „Samkvæmt könnun Capacent myndu flestir velja að leita til VÍB og Íslandsbanka eftir eignastýringarþjónustu eða 31% og er samstarfið við BlackRock liður í því að halda áfram að vera leiðandi í þjónustu til viðskiptavina. Við vonum svo sannarlega að þess sé ekki langt að bíða að íslenskir sparifjáreigendur og fagfjárfestar geti nýtt sér þjónustu BlackRock og VÍB erlendis í auknum mæli,“ segir Stefán í tilkynningunni. Vegna fjármagnshafta gefst einungis viðskiptavinum sem eiga erlendar eignir eða hafa heimild til endurfjárfestingar í erlendum verðbréfum kostur á að fjárfesta í vörum BlackRock.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Viðskipti innlent Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira