VÍS útvistar tækniþjónustu til Reiknistofu Bankanna hf. Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 6. janúar 2014 12:29 Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS og Friðrik Þór Snorrason forstjóri Reiknistofu Bankanna skrifa undir samninginn.
VÍS hefur, að undangengnu útboði, samið við Reiknistofu Bankanna hf. um að annast alrekstur á öllum miðlægum tölvukerfum félagsins til næstu fimm ára. Í tilkynningu frá Reikistofunni segir að með þessu tryggi hún VÍS aðgang að mjög öflugu tvöföldu tækniumhverfi og nær samningurinn meðal annars til reksturs sýndarnetþjóna, gagnaafritunar, netlags, eldveggja, og öryggismála. Samningurinn felur í sér þá nýjung að VÍS fær sjálfsafgreiðslu að tölvuskýsumhverfi Reiknistofunnar sem einfaldar daglegan rekstur og ferla í hugbúnaðarþróun. Í tilkynningunni er haft eftir Sigrúnu Rögnu Ólafsdóttur forstjóra VÍS sem segir samninginn stefnumótandi fyrir VÍS, enda tryggi hann félaginu aukið rekstraröryggi og sveigjanleika í rekstri. „Með því að útvista þessari þjónustu mun VÍS lækka UT kostnað sinn til lengri tíma og getur auk þess einblínt enn frekar á kjarnastarfsemi sína sem er tryggingastarfsemi. Með samningi við RB fer VÍS í samstarf við aðila sem veitir tækniþjónustu sem er sérsniðin að þörfum og kröfum fjármála- og tryggingafyrirtækja,“ segir Sigrún í tilkynningunni. Friðrik Þór Snorrason forstjóri Reiknistofu Bankanna segir í tilkynningunni að samningurinn sé mikilvæg viðurkenning á því uppbyggingarstarfi sem átt hefur sér stað hjá félaginu undanfarin ár. „RB hefur um áratuga skeið sérhæft sig í hönnun og rekstri tæknilausna fyrir fjármálafyrirtæki. Undanfarin misseri hefur félagið eflt til muna þjónustuframboð sitt á sviði alrekstrarþjónustu og er markmið félagsins að verða alhliða þjónustumiðstöð fyrir fjármála- og tryggingarfyrirtæki. Rekstrar- og gagnaöryggi er grunnforsenda allrar þjónustu fjármála- og tryggingarfyrirtækja. RB hefur því lagt metnað sinn í að vinna eftir vottuðum ferlum og er m.a. með ISO 27001 vottun fyrir stjórnkerfi upplýsingatæknikerfa og PCI-DSS vottun fyrir öryggi kortagagna,“ segir Friðrik í tilkynningunni.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira