Nýherji selur danska félagið Dansupport Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 6. janúar 2014 09:32 Söluverð Dansupport er trúnaðarmál. Mynd/Nýherji
Nýherji hf. hefur selt danska félagið Dansupport A/S til fjarskipta- og upplýsingatæknifélagsins Jansson Kommunikation A/S. Dansupport er þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni sem sérhæfir sig í innviðum upplýsingakerfa, samþættum samskiptum (Unified Communications) og þróun á lausnum fyrir IP símtækni. Um 30 manns unnu hjá félaginu á árinu 2013. Félagið var stofnað árið 1987 og varð hluti af Nýherjasamstæðunni árið 2007. Í tilkynningu frá Nýherja segir að tekjur Dansupport á árinu 2012 hafi verið um 50 milljónir danskra króna. Söluverð Dansupport er trúnaðarmál.Þá segir að salan muni hafa óveruleg áhrif á niðurstöðu rekstrar- og efnahagsreiknings Nýherja hf. fyrir árið 2013, en mun treysta lausafjárstöðu félagsins og skerpa áherslur í starfsemi þess. Haft er eftir Finni Oddssyni, forstjóra Nýherja í tilkynningunni þar sem hann segir að á síðustu mánuðum hafi verið unnið að stefnumótun og endurskilgreiningu á megináhreslum Nýherja samstæðunnar. Markmiðið með slíkri vinnu sé að skapa skarpari sýn á grunnstoðir félagsins og þá markaði, viðskiptavini og lausnir sem áhersla verður lögð á til næstu ára. Finnur segir sölu á Dansupport í takt við breyttar áherslur sem vænta má í starfsemi Nýherja, sem munu miða að því að efla þjónustu- og lausnaframboð á sviði upplýsingatækni á íslenskum fyrirtækjamarkaði.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira