Sannleikurinn: Unglingar á slagsmálahátíð í Smáralind Andri Þór Sturluson skrifar 5. janúar 2014 20:38 Þvílíkir snillingar. Bítlar sinnar kynslóðar. „
Ég var tilbúinn að fá glóðarauga en nennti ekki að standa í brotnu nefi eða tapaðri tönn,“ segir Logi Snær Briem sem tók þátt í slagsmálahátíð í Smáralind í smábænum Kópavogi í dag. Vine stjörnurnar Jerome Jarre og Nash Grier, einhver stærstu nöfnin í afþreyingarheiminum í dag, eru komnir hingað til lands til að mótmæla ákvörðun Sigurðar Inga, umhverfis- og auðlindaráðherra, um að mörk friðlands Þjórsárvera yrðu dregin í kringum fyrirhugaða lónsstæði - en ekki fyrir neðan það og um leið opna fyrir nýja gerð Norðlingaölduveitu. Jarome og Nash eru einhverskonar Auddi og Sveppi internetsins en öfugt við þá íslensku tekst þeim að fá fólk til að hlægja með 6 sekúndna myndbrotum en það tekst Audda og Sveppa ekki með hálftíma sjónvarpsþáttum. Smáralind gjörsamlega fylltist af unglingum en þangað höfðu þeir boðað aðdáendur sína kl 16 í dag og átti undirritaður erfitt með að troða sér fremst í gegnum þvöguna til að líta goðin augum. En það tókst þó á endanum því unglingarnir voru mikið yngri og þoldu illa hnefahögg. Öryggisverðir Smáralindar voru sofandi þegar gríðarleg múgæsing myndaðist og verslunarmiðstöðin logaði í slagsmálum. Slíkur var æsingurinn að einhverjum krakkafjanda tókst að hnupla myndavélinni minni þegar ég var upptekinn við að hrinda öðrum inn í jólatré en svona virkar karma stundum. Ljóst var að stjörnurnar höfðu fyrir löngu misst tökin á uppákomunni og flúðu út á bílastæðið norðanmegin þar sem þeir náðu að klöngrast upp á þak á jeppabifreið og verjast ágengni aðdáenda. Það fannst fólki töff og stuttu síðar var enginn lengur maður með mönnum nema vera staddur upp á þaki bifreiðar sem margar hverjar urðu fyrir töluverðum skemmdum vegna þess. Þeir eru því margir sem óska þess núna að hafa ekki ákveðið að fara í Smáralind í dag og skipta ljótu skyrtunni sem frænka gaf í jólagjöf. Strákarnir hafa verið hér á landinu í nokkra daga og hafa þegar fjöldi 6 sekúndna myndbanda birst á Vine-aðgangi þeirra, 42 sekúndur alls, sem öll hafa verið listaverk og er hugmyndaflug þeirra slíkt að jafnvel skuldaniðurfellingarleið forsætisráðherra virðist vera ófrumleg klisja í samanburði. Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu og verður fljótlega einnig á Vine.
Harmageddon Mest lesið Skírður í höfuðið á hljómsveitinni Þeyr Harmageddon Píratar bjóða fram í Reykjavík Harmageddon Maðurinn sem framleiðir sitt eigið áfengi innvortis Harmageddon „Við þurfum að kenna krökkum að taka eiturlyf með öruggum hætti“ Harmageddon Hljómsveitin Maus loksins aftur á svið Harmageddon Rokk Quiz á Bar 11 í kvöld Harmageddon Ný plata frá Deftones í ár Harmageddon Íslam í Reykjavík Harmageddon Sannleikurinn: Bilun hjá Símanum olli því að þingmenn Pírata misstu samband við stjórnstöð Harmageddon Sannleikurinn: Halda að fólk myndi virkilega kaupa lélega tónlist og myndir Harmageddon
Sannleikurinn: Bilun hjá Símanum olli því að þingmenn Pírata misstu samband við stjórnstöð Harmageddon
Sannleikurinn: Bilun hjá Símanum olli því að þingmenn Pírata misstu samband við stjórnstöð Harmageddon