Rassgatið á engu glennir sig - myndband 19. janúar 2014 09:00
Það þekkja kannski ekki margir andlitið, en rassinn á henni er orðinn einn sá þekktasti í bransanum. Hin tvítuga Jen Selter hefur slegið í gegn með metnaðarfullu líkamsræktarbloggi á samskiptavefnum Instagram. Þar er hún komin með hátt í tvær milljónir fylgjenda og virðist ekkert lát ætla að verða á vinsældum hennar. Jen lætur neikvæðar athugasemdir sem vind um eyru þjóta. Gervirass, rassígræðslur og Photoshop eru orð sem hún sér oft í umræðukerfunum en það angrar hana ekki. "Ég veit að rassinn minn er raunverulegur, hann er árangur erfiðis. Þú falsar ekki gott form." Segir Jen sem líka hefur eignast fylgjendur úr röðum fræga fólksins. Söngkonan Rihanna er ein þeirra. Jen kærir sig þó lítt um frægð og frama að eigin sögn. Hún vill einungis vera góð hvatning, koma fólki í ræktina og stuðla að auknu heilbrigði. Það er líklega óhætt að segja að lífstíll hennar hafi vakið mikla athygli. Nú er málið bara að drífa sig í ræktina og nota hashtagið #Seltering á Twitter.
Harmageddon Mest lesið Berum enga ábyrgð á Næs í rassinn Harmageddon Tíu ástæður fyrir því að hugmynd Vigdísar er rosalega vond Harmageddon #FreeTheNipple er byltingarkennt af mörgum ástæðum Harmageddon Logi Bergmann á sviði með Iron Maiden Harmageddon 5 bestu Eurovision-lögin sem unnu ekki undankeppnina á Íslandi Harmageddon Norður-Kórea sést varla frá alþjóðlegu geimstöðinni Harmageddon Vill að forystan axli ábyrgð og segi af sér Harmageddon Pepsi Max: Kontinuum halda toppsætinu Harmageddon Skírður í höfuðið á hljómsveitinni Þeyr Harmageddon Söngvari Creed á ekki efni á mat Harmageddon