Undirrituðu samning um kísilmálmverksmiðju Haraldur Guðmundsson skrifar 10. janúar 2014 17:13 Helguvík. Mynd/GVA.
Thorsil ehf. og Mannvit hf. skrifuðu í dag undir samning um hönnun kísilmálmverksmiðju Thorsil sem rísa á í Helguvík. Mannvit og norska verkfræðistofan Norconsult AS munu hafa umsjón með hönnun, útboðum og byggingu verksmiðjunnar. Verðmæti fyrsta áfanga samningsins er 508 milljónir króna og áætlað er að byggingaframkvæmdir hefjist síðar á þessu ári, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Um þrjú hundruð manns koma til með að starfa við byggingu verksmiðjunnar og er stefnt að því að framleiðsla hefjist á þriðja ársfjórðungi 2016. „Thorsil og Reykjanesbær skrifuðu í október síðastliðnum undir samning um skilmála vegna sextán hektara lóðar undir verksmiðjuna sem Thorsil hyggst reisa á iðnaðar- og hafnarsvæðinu í Helguvík. Vinna við umhverfismat stendur yfir og áætlað er að byggingarframkvæmdir hefjist síðar á þessu ári. Þá skapast um 160 ný störf vegna starfseminnar auk afleiddra starfa, s.s. við flutninga, viðhald, verkfræðiþjónustu og fleira. Áætluð ársframleiðsla er um 54 þúsund tonn af kísilmálmi. Samkomulag um skilmála hefur verið gert við Landsvirkjun um kaup á 87 MW af raforku en gert er ráð fyrir að orkuþörf fyrirtækisins verði um 730 GWst á ári. Langtímasamningar um sölu á rúmlega helmingi af framleiðslu verksmiðjunnar til rótgróinna alþjóðlegra framleiðslufyrirtækja eru á lokastigi,“ segir í tilkynningu vegna samningsins.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Viðskipti innlent Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig? Atvinnulíf Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira