Tíska og hönnun

Ný stikla um Victoriu Beckham

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Búið er að afhjúpa nýja stiklu fyrir heimildarmyndina Five Years: The Victoria Beckham Fashion Story þar sem kryddpían Victoria Beckham opnar sig um það hvernig hún fór frá því að vera poppsöngkona yfir í það að vera virtur fatahönnuður.

„Ég hef alltaf elskað tísku og ég var barn sem horfði á móður mína taka sig til og hugsaði: Vá, þú lítur stórkostlega út. Mig dreymdi alltaf um að hanna mína eigin línu. Það var alltaf mín ástríða,“ segir Victoria í stiklunni.

Heimildarmyndin er unnin í samstarfi við Skype.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.