Spennu hleypt á bræðslu Skinneyjar-Þinganess Óli Kristján Ármannsson skrifar 23. janúar 2014 16:04 Gunnar Ásgeirsson, stjórnarformaður Skinneyjar-Þinganess, Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, Ásgerður Gylfadóttir, bæjarstjóri á Höfn í Hornafirði, Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK, og Aðalsteinn Ingólfsson, framkvæmdastjóri Skinneyjar-Þinganess. Mynd/Landsnet
Afhendingargeta raforku tvöfaldast á Hornafjarðarsvæðinu og afhendingaröryggi eykst stórlega með tilkomu nýrrar aðveitustöðvar RARIK á Höfn í Hornafirði og nýjum útgangi Landsnets í aðveitustöð á Hólum ásamt 132 kV tengingu frá Hólum til Hafnar. Fram kemur í tilkynningu frá Landsneti að Ásgerður Gylfadóttir, bæjarstjóri Hornafjarðar, hafi í dag formlega tekið í notkun nýja aðveitustöð RARIK á Höfn þegar spennu var hleypt inn á rafskautsketil í fiskimjölsverksmiðju Skinneyjar-Þinganess. „Þar með skapast möguleiki á notkun raforku í stað olíu í verksmiðjunni,“ segir í tilkynningunni. „Aðeins er rúmt ár frá því að Landsnet og RARIK gengu frá samkomulagi við Skinney-Þinganes um aukna afhendingu á raforku fyrir fiskimjölsverksmiðjuna á Höfn. Eins og kunnugt er hafa uppsjávarfyrirtækin, ekki síst á Austurlandi, fært sig í vaxandi mæli frá því að nota olíu yfir í notkun á innlendri raforku,“ segir þar jafnframt. Fram kemur að allar fiskimjölsverksmiðjur frá Vopnafirði suður til Hornafjarðar hafi nú skipt yfir á rafmagn í stað olíu, sem þó gæti þurft að grípa til þegar byggðalínan er fulllestuð og annar ekki eftirspurn. Með breytingunum er flutningsgetan inn á Hornafjarðarsvæðið sögð hafa tvöfaldast og afhendingaröryggi aukist verulega. „Nú eru tvær aðskildar leiðir inn til Hornafjarðar frá 132 kV byggðalínukerfinu. Skapar það möguleika á enn frekari atvinnuuppbyggingu á svæðinu.“ Heildarkostnaður RARIK við framkvæmdirnar eru sagðar nema um 300 milljónum króna og kostnaður Landsnets um 200 milljónum króna.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig? Atvinnulíf Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira