Lækkun verðbólgu gefur fögur fyrirheit Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 31. janúar 2014 14:23 Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ og Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri SA. „
Þetta eru vonandi tíðindi fyrir þá sem höfnuðu samningnum vegna þess að þeir voru með efasemdir um að þetta myndi nást,“ segir Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ um lækkun á verðbólgu í janúar. Ársverðbólgan lækkaði um 1,1 prósentustig milli mánaða í janúar, úr 4,2% í 3,1%. „Markmið þessara kjarasamninga sem við gerðum var auðvitað að taka glímu við verðbólguna. Í baklandi okkar voru efasemdir um að það tækist og auðvitað hjá okkur sjálfum líka. En það er ljóst að krónan hefur verið að vinna með okkur undanfarið ár og það er í sjálfu sér ekkert verðbólgufóður í pípunum, þannig að það að semja um lægri launabreytingar myndi þýða að atvinnurekendur þyrftu ekki að ýta neinu út í verðið,“ segir Gylfi. Lækkunin í janúar var meiri en opinberar spár gerðu ráð fyrir, en þær lágu á bilinu 0,3 til 0,5 prósentustig. Í janúar hafa útsölur jafnan mest áhrif, fatnaður og skór lækkuðu um 10,8% og húsgögn og heimilisbúnaður um 2,8%. Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 14,6% og eldsneyti um 2,5%. Helstu hækkunarvaldar voru húsnæðisliður og hækkun gjaldskráa ýmissa fyrirtækja og stofnana.Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir mikið tækifæri til að ná verðbólgu niður fyrir markmið Seðlabankans og halda henni þar í framhaldinu. „Það ætti að hjálpa okkur með þá kjarasamninga sem voru felldir þar sem þetta eykur tiltrú á þá vegferð sem við vorum á. Við getum náð því að byggja upp kaupmátt á lægri nafnhækkunum launa en áður og þannig náð verðbólgu talsvert niður. Sem og að ná vöxtum niður sem skilar mestum ávinningi fyrir bæði heimili og fyrirtæki,“ segir Þorsteinn.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig? Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Viðskipti innlent Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira