Landflutningar kaupa bíla og tæki fyrir hálfan milljarð Stefán Árni Pálsson skrifar 31. janúar 2014 10:05 Bílstjórar Landflutninga eru hér við nýjustu viðbót flotans, sem þegar er komin út á þjóðvegina. mynd/aðsend
Samskip hafa keypt bíla og margvísleg tæki fyrir um 150 milljónir króna á síðustu mánuðum fyrir Landflutninga. Frekari bíla- og tækjakaup eru framundan og er áætlað að þau kaup nemi um 350 milljónum króna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Endurnýjaður og öflugri floti fyrirtækisins verður umhverfisvænni en áður og mun auðvelda Landflutningum að viðhalda og efla þjónustustigið. Fjárfest verður í tækjum og bifreiðum á öllum sviðum og þjónustustöðvum félagsins. Gísli Þór Arnarson framkvæmdastjóri innanlandssviðs Samskipa fagnar þessari fjárfestingu. „Við erum að efla flotann okkar og uppfæra enn frekar þá þjónustu sem við bjóðum viðskiptavinum. Á sama tíma er hluti af þessari miklu fjárfestingu eðlilegt viðhald og endurnýjun.“Nýir flutningabílar Fimm nýir Scania dráttarbílar hafa bæst við flota Landflutninga frá áramótum. Um er að ræða fjóra tíu hjóla dráttarbíla og einn átta hjóla. Allir bílarnir eru ríkulega búnir tækjum og tólum sem miða að því að auka öryggi og tryggja minni útblástur og eins „grænan flutning“ og völ er á. Bílarnir eru búnir vélum af EURO6 gerð sem eru umhverfisvænustu dísilvélar sem í boði eru. Bílarnir eru tengdir gagnabanka Scania í gegnum gervihnött sem fylgist með ástandi og notkun sem nýtist til að lágmarka rekstrarkostnað og er leiðbeinandi um aksturslag. Allir bílarnir eru búnir hraðatakmarkara sem takmarka hámarkshraða bíls við 90 km. Með þessari fjárfestingu er tryggt að áfram verður viðhaldið mjög háu þjónustustigi á áætlunarleiðum Landflutninga og rekstraröryggi eykst á sama tíma. Tvær nýjar gámalyftur Landflutningar – Samskip hafa tekið í notkun tvær nýjar gámalyftur af gerðinni Box Loader. Lyfturnar eru fjölnota og eru fyrir bæði 20“ og 40“ gáma. Lyfturnar eru sérstaklega lágbyggðar til að lágmarka heildarhæð ækis sem eykur öryggi í akstri og auðveldar einnig aðgengi hjá viðskiptavinum við losun og lestun. Gámalyfturnar eru með sjálfstæðan vélbúnað til að drífa vökvakerfi gámakrana sem eykur afköst verulega. Lyfturnar eru sérstaklega styrktar og geta lyft allt að 35 tonna þungum gámum og er þeim stjórnað með þráðlausum fjarstýringum. Sex ný tæki fyrir vörumiðstöðinaSamskip hafa fest kaup á sex nýjum tækjum til notkunar í vörumiðstöð félagsins í Kjalarvogi af VB Vörumeðhöndlun. Er um að ræða tvo rekkalyftara, tvö tínslutæki og tvö brettatæki frá framleiðandanum Jungheinrich sem munu nýtast vel í afgreiðslu til viðskiptavina vörumiðstöðvarinnar. Eru kaupin liður í endurnýjun tækjaflota vörumiðstöðvarinnar og munu þau auka afkastagetu til muna. Gísli Þór Arnarson segir von á fleiri nýjum bílum og tækjum fyrir alla þætti starfsemi Landflutninga. „Vissulega er hér um að ræða mikla fjármuni, en við teljum þetta nauðsynlegt til að geta áfram verið í fremstu röð í þeirri samkeppni sem ríkir á þessum markaði. Við erum að stíga stór skref fram á við með þessum fjárfestingum.“
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig? Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Viðskipti innlent Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira