56 milljónum úthlutað úr Orkurannsóknarsjóði Landsvirkjunar Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 6. febrúar 2014 16:32 Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir á sviði umhverfis- og orkumála. Vísir/Landsvirkjun
Sjöunda úthlutun Orkurannsóknarsjóðs Landsvirkjunar fór fram við hátíðlega athöfn í Háskólanum í Reykjavík í gær. Að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsvirkjun var 56 milljónum úthlutað til margvíslegra verkefna á sviði umhverfis- og orkumála. Fjölmargar góðar umsóknir hagi borist en veittir eru styrkir til nemenda í meistara- eða doktorsnámi og til rannsóknaverkefna. Sjö doktorsnemar fengu styrk að upphæð 1.200.000 krónur hver og tólf styrkir voru veittir til meistaranema, að upphæð 600.000 krónur hver. Af veittum styrkjum í meistara- eða doktorsnámi voru sex styrkir til virkjunarmála en þrettán til rannsókna á náttúru og umhverfi. Til rannsóknarverkefna voru veittir styrkir að heildarupphæð 40,5 milljónir króna til 18 verkefna. Verkefnin eru mjög fjölbreytt og voru sjö styrkir til orkumála og ellefu til rannsókna á náttúru og umhverfi. Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir á sviði umhverfis- og orkumála og veita styrki til námsmanna, rannsóknarverkefna á vegum háskóla, stofnanna, fyrirtækja og einstaklinga. Sjóðurinn miðar að því að gera fjárframlög Landsvirkjunar til rannsókna skilvirkari og sýnilegri, og tryggja að þær rannsóknir sem sjóðurinn styrkir samræmist umhverfisstefnu Landsvirkjunar. Stjórnarformaður sjóðsins er Sveinbjörn Björnsson, eðlisfræðingur og fyrrum háskólarektor, en stjórn Orkurannsóknarsjóðs skipa fjórir fulltrúar háskólasamfélagsins og tveir fulltrúar Landsvirkjunar.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig? Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Viðskipti innlent Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Íslenska ánægjuvogin: Viðskiptavinir Indó og miðaldra konur ánægðust Neytendur Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira