Aflaverðmæti dróst saman um 7,1 milljarð Haraldur Guðmundsson skrifar 18. febrúar 2014 10:02 Aflaverðmæti botnfisks var tæplega 85,2 milljarðar króna og dróst saman um 5,1 prósent. Vísir/Stefán
Aflaverðmæti íslenskra skipa á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2013 dróst saman um rúmlega 7,1 milljarð króna eða 4,6 prósent á milli ára. Fyrstu ellefu mánuðir síðasta árs skiluðu 143,9 milljörðum króna í aflaverðmæti en veiðar á sama tímabili 2012 skiluðu 151 milljarði. Aflaverðmæti botnfisks var tæplega 85,2 milljarðar króna og dróst saman um 5,1 prósent. Þar af skiluðu veiðar á þorski 43,4 milljörðum, sem var samdráttur um 5,4 prósent frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 11,2 milljörðum og dróst saman um 2,7 prósent, en verðmæti karfaaflans dróst saman um 4,9 prósent þegar það nam tæpum 12,7 milljörðum. Verðmæti ufsaaflans jókst um 5,2 prósent milli ára og nam tæpum 9,3 milljörðum króna. „Verðmæti uppsjávarafla nam tæpum 44,4 milljörðum króna í janúar til nóvember 2013 sem er um 4,1 prósenta samdráttur frá fyrra ári. Aflaverðmæti loðnu nam 15,6 milljörðum króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2013 sem er 18,2 prósenta aukning miðað við sama tímabil árið 2012. Aflaverðmæti kolmunna jókst um 9,4 prósent frá fyrra ári og var tæplega 3 milljarðar króna í janúar til nóvember 2013. Aflaverðmæti síldar dróst saman um 33,1 prósent milli ára og var rúmlega 9,6 milljarðar króna í janúar til nóvember 2013. Aflaverðmæti makríls var um 15,4 milljarðar króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2013 sem er 6,7 prósenta aukning miðað við sama tímabil árið áður. Aflaverðmæti flatfisksafla nam tæpum 9,3 milljörðum króna, sem er 4,3 prósenta samdráttur frá janúar til nóvember 2012. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 67,8 milljörðum króna og dróst saman um 3,6 prósent miðað við fyrstu ellefu mánuði ársins 2012. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 0,8 prósent milli ára og nam tæplega 19,6 milljörðum króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam rúmum 51,2 milljörðum í janúar til nóvember 2013 og dróst saman um 6,5 prósent milli ára en verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam rúmum 4,3 milljörðum króna, sem er 16,5 prósent samdráttur frá árinu 2012 ,“ segir í frétt Hagstofunnar.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig? Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Viðskipti innlent Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Íslenska ánægjuvogin: Viðskiptavinir Indó og miðaldra konur ánægðust Neytendur Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira