Málmhaus frumsýnd í Svíþjóð Andri Þór Sturluson skrifar 28. febrúar 2014 22:39 Ragnar Bragason, leikstjóri.
Málmhaus er í bullandi útrás. Hún var frumsýnd í Svíþjóð í kvöld. Svo fylgja hin norðurlöndin eftir eins og dómínókubbar á næstu vikum. Fyrst þegar ég heyrði um þessa mynd þá var ég viss um að hún fjallaði um einhvern sveitastjórnarmann að berjast fyrir álveri í Helguvík en það er fjarri lagi. Myndin er stórgóð. Of góð til að torrenta hana.Ragnar Bragason, leikstjóri, var í Skype viðtali við vefritið Vice um myndina og tildrög hennar. Þar er hann meðal annars spurður út í það afhverju hann sem karlmaður lét konu vera aðalsöguhetju myndarinnar, sem er svo sem réttmæt spurning – fyrir tuttugu árum síðan. Aðrar spurningar eru betri, innihalda reyndar spoilera en þetta er mynd sem allir eiga að vera búnir að sjá. Hér er smá auka innsýn inn í framleiðslu myndarinnar og hvernig hún kom til, fyrir þá sem hafa gaman af Ragnari og myndinni.
Harmageddon Mest lesið Þegar Loftur spjallaði við Harmageddon Harmageddon Nýtt myndband með Leoncie og Shades of Reykjavík Harmageddon Konungur undirganganna Harmageddon Freysi með Stjána Stuð og Soffíu Harmageddon Miðasalan á Eistnaflug er hafin. Harmageddon Kæmi ekki til baka nema breyting yrði á forystu flokksins Harmageddon Kontinuum á toppi Pepsi Max lista X977 Harmageddon Nýsjálenskir femínistar snúa vörn í sókn Harmageddon Sannleikurinn: Blátt áfram fá áfram að hræða börn Harmageddon Telur borgina þurfa að koma með innlegg í kjaraviðræður Harmageddon