Heimili og fyrirtæki bera 150 milljarða aukakostnað Haraldur Guðmundsson skrifar 28. febrúar 2014 11:15 Raunvextir hér hafa verið þremur prósentum hærri en í viðskiptalöndunum. Vísir/Vilhelm
Íslensk heimili og fyrirtæki bera 150 milljarða króna aukakostnað árlega vegna hærri raunvaxta en í viðskiptalöndunum, samkvæmt frétt á vef Samtaka atvinnulífsins (SA). Þar er rifjað upp að raunvextir hér hafi verið þremur prósentum hærri en í viðskiptalöndunum á sama tíma og íslensk heimili og fyrirtæki eru mjög skuldug, en þau eiga mikið undir vaxtastiginu. SA rifja upp síðustu skýrslu Seðlabanka Íslands um fjármálastöðugleika þar sem kom fram að á miðju ári 2013 hafi skuldir heimilanna numið 108,3 prósentum af landsframleiðslu og skuldir fyrirtækja 165,5 prósent, eða samtals 273,8 prósent. „Landsframleiðsla ársins 2013 var u.þ.b. 1.820 milljarðar króna þannig að samkvæmt áætlun Seðlabankans hafa skuldir heimila numið 2.000 milljörðum króna og skuldir fyrirtækja 3.000 milljörðum króna, eða samtals 5.000 milljörðum króna. Skuldug íslensk heimili og fyrirtæki þurfa að standa skil á 3% hærri raunvöxtum en að jafnaði í nágrannaríkjunum og samsvarar það 150 milljarða króna vaxtagreiðslum þeirra ár hvert. Þessi fjárhæð, sem nemur 8% af landsframleiðslunni, er einn mælikvarðinn á þann kostnað sem íslensk heimili og fyrirtæki bera af íslensku krónunni," segir í frétt SA.
Mest lesið Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig? Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Íslenska ánægjuvogin: Viðskiptavinir Indó og miðaldra konur ánægðust Neytendur Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Sjá meira