Tveir svanir á skrifstofu forstjóra FME Haraldur Guðmundsson skrifar 26. febrúar 2014 08:31 Stofnunin flutti í september 2011 í nýtt leiguhúsnæði við Katrínartún 2 í Reykjavík. Vísir/Vilhelm
Fjármálaeftirlitið (FME) keypti í september tvo fundarstóla fyrir skrifstofu Unnar Gunnarsdóttur, forstjóra stofnunarinnar, sem kostuðu samtals 792 þúsund krónur. Stólarnir eru þekkt hönnunarvara sem heitir Svanurinn. Þeir voru að sögn upplýsingafulltrúa FME síðasti liðurinn í 66 milljóna króna endurnýjun á húsbúnaði sem hófst árið 2011 þegar ríkisstofnunin flutti í nýtt húsnæði að Katrínartúni 2. „Þessir stólar á skrifstofu forstjóra eru þeir einu þessarar gerðar hér í Fjármálaeftirlitinu,“ segir Sigurður G. Valgeirsson, upplýsingafulltrúi FME. Í svari stofnunarinnar við fyrirspurn Markaðarins segir að um 9,4 milljónir króna af heildarkostnaðinum hafi farið í kaup á nýjum húsgögnum fyrir ellefu einkaskrifstofur stjórnenda FME, eða um 857 þúsund krónur á hverja skrifstofu.Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, segir tölur FME staðfesta að þar ríki annar kúltúr en á mörgum öðrum ríkisstofnunum. „Ég hef vakið athygli á því að á sama tíma og við höfum verið að draga saman í heilbrigðis-, mennta- og löggæslumálum þá hefur verið gríðarleg aukning til opinbers eftirlits og þar virðist ríkja önnur menning heldur en á þessum stofnunum sem ég var að vísa til sem sinna grunnþjónustu,“ segir Guðlaugur Þór.Danski hönnuðurinn Arne Jacobsen hannaði Svaninn í lok fimmta áratugarins.Hann segir framlög til FME hafa verið aukin um 198 prósent frá árinu 2007. Rekstur stofnunarinnar er fjármagnaður af eftirlitsskyldum aðilum, það er bönkum og tryggingafélögum, samkvæmt lögum um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. „Þetta er eitthvert umhverfi sem ég sá svo sannarlega ekki sem heilbrigðisráðherra og get ekki séð rökin fyrir af hverju þarf að ganga fram með þessum hætti. Eftirlit er mikilvægt en það verður að gera kröfur til þess að menn fari þar vel með almannafé, þar eins og annars staðar,“ segir Guðlaugur Þór.
Mest lesið Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig? Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Viðskipti innlent Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Íslenska ánægjuvogin: Viðskiptavinir Indó og miðaldra konur ánægðust Neytendur Fleiri fréttir Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Sjá meira