Laun hækkuðu um 0,9% frá fyrri ársfjórðungi Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 8. mars 2014 09:34
Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 0,9% hærri á fjórða ársfjórðungi 2013 en á ársfjórðungnum á undan. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 6,0% að meðaltali, hækkunin var 6,1% á almennum vinnumarkaði og 5,5% hjá opinberum starfsmönnum. Þar af hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um 6,1% en hjá starfsmönnum sveitarfélaga um 4,9%. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa mest í byggingarstarfsemi eða um 1,4%. Þá hækkuðu laun milli ársfjórðunga um 1,1% í samgöngum, 1,0% í verslun og í fjármálaþjónustu og 0,9% í iðnaði. Frá fyrra ári hækkuðu laun mest í samgöngum eða um 7,3% en minnst í iðnaði eða um 5,6%. Frá fyrri ársfjórðungi var hækkun reglulegra launa eftir starfsstéttum á bilinu 0,6% til 1,4%. Laun verkafólks hækkuðu mest en laun iðnaðarmanna hækkuðu minnst. Frá fyrra ári hækkuðu laun skrifstofufólks mest eða um 7,8% en laun stjórnenda hækkuðu minnst eða um 5,1%. Á sama tíma hækkuðu regluleg laun tækna um 6,7%, sérfræðinga um 6,5%, þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks um 6,2%, verkafólks um 6,1% og iðnaðarmanna um 5,5%. Stéttarfélög á almennum vinnumarkaði undirrituðu nýjan kjarasamning í desember á síðasta ári. Kjarasamningurinn tók gildi 1. janúar 2014 og var hann gerður til tólf mánaða. Þá hækkuðu laun um 2,8% eða að minnsta kosti 8 þúsund krónur á mánuði fyrir fullt starf.
Mest lesið Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig? Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Íslenska ánægjuvogin: Viðskiptavinir Indó og miðaldra konur ánægðust Neytendur Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Sjá meira