Afar jákvæðar hagtölur fyrir Ísland Þorbjörn Þórðarson skrifar 9. apríl 2014 21:56
Þrátt fyrir að þjóðarbúið eigi ekki gjaldeyri til að standa undir afborgunum lána eru mjög jákvæð teikn á lofti í efnahagslífinu. Atvinnuleysi er lægra hér og hagvöxtur hærri hér en í flestum öðrum vestrænum ríkjum. Í ritinu Fjármálastöðugleika sem kom út í dag og í kynningu Sigríðar Benediktsdóttur, framkvæmdastjóra samnefnds sviðs hjá Seðlabankanum, komu fram upplýsingar um mjög jákvæð teikn á lofti í íslensku efnahagslífi. Afkoma stóru bankanna þriggja var góð á síðsata ári og skuldsetning þeirra er lítil. Hagvöxtur var 3,3 prósent hér í fyrra en þetta er mesti hagvöxtur frá bankahruni og að mestu drifinn áfram af útflutningi. Hagvöxtur á Íslandi er hærri en í öðrum þróuðum ríkjum. Kaupmáttur ráðstöfunartekna, þ.e. hvað fæst fyrir útborguð laun, jókst um 4,1 prósent í fyrra. Viðskiptajöfnuður, þ.e. mismunur inn- og útflutnings mældist jákvæður í fyrra um 82 milljarða eða sem nemur 4,6 prósentum af landsframleiðslu. Hann hefur ekki verið meiri frá 2010. Gjaldþrotum fyrirtækja hefur fækkað verulega frá 2011 en þá urðu 1.600 fyrirtæki gjaldþrota. Skuldir fyrirtækja sem hlutfall af landsframleiðslu var 141 prósent í fyrra. Þetta hljómar mikið en þetta eru mjög góð tíðindi því skuldahlutafallið er nú svipað og í ársbyrjun 2005. Í lok árs 2008 var þetta hlutfall tæplega 400%. Í þessari upptalningu vantar atvinnuleysi. Í febrúar var atvinnuleysi hér á landi 4,2 prósent en það er lægra en í öllum ríkjum Evrópusambandsins. Aðeins Sviss og Noregur, hvorugt ESB-ríki, hafa lægra atvinnuleysi í ríkjum Evrópu en Ísland, samkvæmt opinberum birtum hagtölum vikuritsins The Economist fyrir febrúar sl.
Mest lesið Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent 43 ára kvikmyndasaga kvödd Lífið samstarf Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Sjá meira