VÍS tapaði fjórtán milljónum á fyrsta ársfjórðungi Stefán Árni Pálsson skrifar 29. apríl 2014 16:14 Sigrún Ragna Ólafsdóttir visir/vilhelm
Fjórtán milljóna króna tap varð af rekstri Vátryggingafélags Íslands á fyrsta fjórðungi samanborið við 711 milljóna króna hagnað á sama tímabili árið 2013 en þetta kemur fram í samstæðuárshlutareikningur VÍS fyrir fyrsta ársfjórðung 2014. Iðgjöld tímabilsins námu 3.861 m.kr. samanborið við 4.024 m.kr sama tímabil árið 2013. Framlegð af vátryggingarekstri var neikvæð um 66 m.kr. samanborið við jákvæða framlegð 19 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi árið 2013. Samsett hlutfall var 102,9% samanborið við 100,4% á sama tímabili 2013. Fjármunatekjur námu 171 m.kr. samanborið við 976 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2013. Heildareignir í lok mars námu 50.183 m.kr. samanborið við 46.254 m.kr. í árslok 2013. „Rekstur félagsins var þungur á fyrsta ársfjórðungi ársins en það ber að hafa í huga að rekstur tryggingafélaga er nokkuð sveiflukenndur frá einum ársfjórðungi til annars. Tjónaþungi var meiri á fyrsta ársfjórðungi en verið hefur um nokkurt skeið og var samsett hlutfall félagsins á fjórðungnum 102,9% samanborið við 100,4% á sama tímabili 2013,“ segir Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS. „Iðgjöld félagsins dragast saman frá sama tímabili 2013 en áherslur félagsins á að bæta arðsemi af vátryggingastarfseminni og samkeppni á markaði skýra lækkunina. Ávöxtun af fjárfestingasafni félagsins á 1. ársfjórðungi var nokkuð undir væntingum stjórnenda og verulega lægri en á sama tímabili 2013. Markaðir bæði fyrir hlutabréf og verðtryggð skuldabréf skiluðu lágri eða neikvæðri ávöxtun á tímabilinu og námu tekjur af fjárfestingastarfsemi félagsins 171 milljón króna samanborið við 976 milljónir króna á á sama tímabili 2013. Rekstrarkostnaður stóð í stað á milli ársfjórðunga.“ Sigrún segir að áfram verði unnið að því í samræmi við stefnu félagsins að einfalda starfsemi þess með því að leiðarljósi að bæta þjónustu við viðskiptavini og auka ánægju þeirra, auka skilvirkni í starfseminni og lækka þannig rekstrarkostnað. „Á ársfjórðungnum var rekstri á útstöðvum upplýsingatæknikerfa, notendaþjónustu og alrekstri á öllum miðlægum tölvukerfum félagsins útvistað í kjölfar útboðs og öll tölvukerfi félagsins flutt til Reiknistofu bankanna. Útvistun mun einfalda upplýsingatæknirekstur félagsins og færa því meiri áherslu á kjarnastarfsemi þess, lægri kostnað, aukinn sveigjanleika og öryggi í rekstri.“
Mest lesið Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ Atvinnulíf Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Sjá meira