Ein elsta tuggan í kringum Eurovision-keppnina er sú að aðrar Evrópuþjóðir en Íslendingar hafi ekki áhuga á keppninni. Að við séum þau einu sem taki hana alvarlega og aðrir láti sér fátt um hana finnast.
Þeir Atli Fannar og Haukur Viðar, sem leysa þá Frosta og Mána í Harmageddon af þar til í næstu viku, ákváðu að slá á þráðinn til Evrópu og kanna hvort ekki sé einhver smá stemning fyrir keppninni.
Barþjónninn á Lundúnakránni Lamb and Flag var ekki búinn að sjá fyrra undankvöldið, þar sem hið alíslenska Pollapönk komst áfram í sjálfa aðalkeppnina, en hafði tekið hana upp og ætlaði að horfa þegar hann ætti lausa stund.
En hvað hafði starfsmaður þjónustuvers Ikea í Svíþjóð um Pollana að segja? Sá stúlkan hnökralausan flutning Íslendinganna á þriðjudagskvöldið? Tekur hún undir með aðdáun Evrópu á kynþokka gula polla? Var hún hrifin af danssporum þingmannsins Óttars Proppé?
Hljóðbrotið má hlusta á í spilaranum hér fyrir ofan.
Harmageddon