Björgvin og Sturla framlengja við ÍR Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. maí 2014 15:30 Björgvin Hólmgeirsson kláraði ekki tímabilið vegna meiðsla. Vísir/Stefán
Stórskyttan Björgvin Hólmgeirsson og hornamaðurinn og silfurdrengurinn SturlaÁsgeirsson hafa skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum við ÍR og verða áfram í herbúðum liðsins í Olís-deild karla í handbolta næsta vetur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ÍR-ingum en í henni segir að Björgvin hefur heimild til að yfirgefa félagið í sumar komi tilboð frá erlendu félagi sem honum líst á. Báðir eru þeir uppaldir hjá ÍR og hafa verið lykilmenn í upprisu félagsins undanfarin tvö ár eftir að það komst aftur í deild þeirra bestu og varð bikarmeistari á síðasta ári. Björgvin spilaði aðeins 14 leiki í vetur og skoraði 84 mörk en hann meiddist fyrir þriðju umferð deildarinnar og gat ekki tekið frekari þátt. Það veikti ÍR-liðið mikið sem hafnaði að lokum í sjöunda sæti en hélt sæti sínu í deildinni. Sturla varð markakóngur deildarinnar annað árið í röð en hann skoraði 136 mörk í 21 leik, fimm mörkum meira en nýr þjálfari liðsins, BjarniFritzson, sem tekur við ÍR af BjarkaSigurðssyni. „Ég er mjög ánægður með að vera búinn að ganga frá samningum við þá Björgvin og Sturlu. Þeir eru öflugir leikmenn og miklir ÍR-ingar. Við erum stórhuga fyrir næsta tímabil og því er mikilvægt að þeir taki þátt í áframhaldandi velgengni félagsins,“ segir Runóflur Sveinsson formaður handknattleiksdeildar ÍR. Sturla varð markakóngur annað árið í röð.Vísir/Daníel
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira