Hagar hagnast um 939 milljónir á fyrsta ársfjórðungi Randver Kári Randversson skrifar 27. júní 2014 17:44 Hagnaður Haga nam 939 milljónum eftir skatta á tímabilinu 1. mars til 31. maí 2014. Vísir/Valli
Árshlutareikningur Haga hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2014/15 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 27. júní 2014. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2014 til 31. maí 2014. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Endurskoðendur félagsins, KPMG ehf., hafa hvorki endurskoðað né kannað reikninginn.Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Hagnaður tímabilsins fyrir skatta nam 1.174 milljónum króna, samanborið við 1.046 milljónir króna árið áður. Hagnaður eftir skatta nam 939 milljónum króna á tímabilinu, sem jafngildir 5,0% af veltu en hagnaður eftir skatta á fyrra ári var 837 milljónir. Vörusala tímabilsins nam 18.885 milljónum króna, samanborið við 18.379 milljón króna árið áður. Söluaukning félagsins er 2,75%. Hækkun 12 mánaða meðaltals vísitölu neysluverðs milli rekstrarára var 3,24%. Framlegð félagsins var 4.574 milljónir króna, samanborið við 4.447 milljónir króna árið áður eða 24,2% sem er sama framlegðarhlutfall og árið áður. Rekstrarkostnaður í heild hækkar um 54 milljónir króna eða 1,7% milli ára en kostnaðarhlutfallið lækkar úr 17,1% í 16,9%. Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 1.405 milljónum króna, samanborið við 1.336 milljónir króna árið áður. EBITDA framlegð var 7,4%, samanborið við 7,3% árið áður. Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 26.752 milljónum króna. Fastafjármunir voru 13.107 milljónir króna og veltufjármunir 13.645 milljónir króna. Þar af eru birgðir 5.105 milljónir króna en birgðir voru 5.567 milljónir króna ári áður og hafa því minnkað um 462 milljónir milli ára eða sem nemur 8,3%. Eigið fé félagsins var 13.037 milljónir króna í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall 48,7%. Heildarskuldir samstæðunnar voru 13.715 milljónir króna, þar af voru langtímaskuldir 5.321 milljón króna. Nettó vaxtaberandi skuldir félagsins í lok tímabilsins voru 1.682 milljónir króna en 1.472 milljónir króna voru greiddar inn á langtímalán félagsins umfram lánssamning á tímabilinu. Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 1.220 milljónum króna, samanborið við 948 milljónir króna á fyrra ári. Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 221 milljón króna og fjármögnunarhreyfingar 1.639 milljónir króna. Handbært fé í lok tímabilsins var 3.503 milljónir króna, samanborið við 3.144 milljónir króna árið áður.
Mest lesið Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Eigandi Vélfags talinn tengjast rússnesku leyniþjónustunni Viðskipti innlent Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira