Grímsá hefur farið rólega af stað eins og flestar árnar á vesturlandi en þrátt fyrir að fjöldi fiska sé ekki mikill er mest af honum vænn.
Það hafa sést nokkrir sannkallaðir drekar í ánni og eru þeir á hraðferð upp ánna, það sést vel að nýjasta stórlaxinum sem kemur á land ár á bæ. Á mynd sem við fengum frá Hreggnasa sést 87 sm lax sem veiddist í efsta veiðistað Grímsár, Oddsstaðafljóti en þar sáust fleiri laxar sem litu ekki við flugum veiðimanna. Það er Haraldur Þórðarsson sem veiddi laxinn.
Miklar rigningar hafa gert veiðimönnum í Borgarfirði og næsta nágrenni erfitt fyrir en mikið vatn er í sumum ánum, langt yfir því sem kallast venjulegt sumarrennsli. Það getur verið ein ástæðan fyrir því að smálaxagöngurnar seinka sér í árnar en það er vel þekkt að þegar árnar sjatna eftir miklar rigningar á þessum árstíma ganga laxar í árnar sem hafa hangið lengi í hálfsöltuvatni, eru búnir að fella gönguhreistur og sumir komnir með þaralit ef því að bíða of lengi eftir góðu vatni í þaraskógi undan árósunum. Stóri júnístraumurinn er eftir tvo daga og fram yfir helgi er spáð minni eða engri úrkomu á suður og vesturhorni landsins sem verður til að árnar sjatna hratt og ættu að vera í kjörvatni á þeim tíma sem laxinn á að ganga.
Það eru lika stórir laxar í Grímsá
