Matthías skoraði tvisvar framhjá Hannesi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. júlí 2014 18:09 Matthías var á skotskónum í dag. Aðsend
Matthías Vilhjálmsson var hetja Start í dag, en hann skoraði bæði mörk liðsins í sigri á Sandnes Ulf á útivelli í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Matthías kom Start yfir á 4. mínútu og bætti svo öðru marki við á þeirri 15. Þannig var staðan fram á 80. mínútu þegar Diego Rubio minnkaði muninn fyrir Sandnes. Lengra komust heimamenn hins vegar ekki og Matthías og félagar fögnuðu góðum 2-1 sigri. Guðmundur Kristjánsson lék allan leikinn fyrir Start sem situr í 9. sæti með 18 stig. Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson var á sínum stað í marki Sandnes sem situr í 16. og neðsta sæti deildarinnar með 10 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti.Guðmundur Þórarinsson lék allan leikinn fyrir Sarpsborg 08 sem gerði markalaust jafntefli við Lillestrøm á útivelli. Þórarinn Ingi Valdimarsson kom inn á sem varamaður í liði Sarpsborgar á lokamínútu leiksins. Lillestrøm situr í 6. sæti með 22 stig, en Sarpsborg í því 11. með 18 stig. Þá vann Odd Grenland öruggan sigur á Bodø/Glimt með þremur mörkum gegn engu á útivelli.Jone Samuelsen, Elba Rashini og Ole Jørgen Halvorsen skoruðu mörk Odd Grenland sem situr í 3. sæti deildarinnar með 28 stig. Bodø/Glimt er í 10. sæti með 18 stig. Fyrr í dag gerðu Sogndal og Viking markalaust jafntefli.
Fótbolti á Norðurlöndum Tengdar fréttir Fimm Íslendingar í byrjunarliði Sogndal og Viking gerðu markalaust jafntefli í fyrsta leik dagsins í norsku úrvalsdeildinni. 12. júlí 2014 15:33 Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Sjá meira
Fimm Íslendingar í byrjunarliði Sogndal og Viking gerðu markalaust jafntefli í fyrsta leik dagsins í norsku úrvalsdeildinni. 12. júlí 2014 15:33