Gríðarleg fjölgun byggingakrana vísbending um nýja fasteignabólu? Jón Júlíus Karlsson skrifar 23. júlí 2014 20:00
Byggingakrönum á höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað verulega á síðustu misserum. Yfirverkfræðingur hjá Ístaki segir að byggingaiðnaðurinn hafi tekið við sér á síðastliðnu ári en ný bóla á fasteignamarkaði sé ekki í uppsiglingu. Hagfræðiprófessor varar við of hraðri uppbyggingu.Íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa ef til vill tekið eftir allnokkurri fjölgun á byggingakrönum á síðustu misserum sem spretta upp um alla borg. Undanfarin ár hefur Fréttablaðið staðið fyrir talningu á byggingakrönum sem getur gefið vísbendingar um efnahagshorfur á Íslandi. Bandaríski hagfræðingurinn Robert Aliber kom hingað til land í maímánuði árið 2008. Þegar hann sá alla þá byggingakrana sem bar við loft í Reykjavík þá spáði hann falli íslensku bankanna. Ísland væri fast í byggingabólu sem hlyti að springa. Getur sagan endurtekið sig? „Það er ekki ástæða til að hafa áhyggjur af hruni,“ segir Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. „Hins vegar er alltaf ástæða til að hafa áhyggjur af efnahagspóitíkinni. Það er þegar bylgjan er að fara upp sem það er hægt að gera eitthvað til þess að hún verði ekki of kröpp þegar hún fer niður og valdi ekki skaða.“ „Ef við förum að horfa á sívaxandi fjölgun byggingakrana þá er rétt að fara að velta því fyrir sér hvort einhverjir séu að taka rangar ákvarðanir,“ segir Þórólfur.Byggingaiðnaðurinn loks að taka við sérHermann Sigurðsson, yfirtæknifræðingur hjá Ístaki, segir að byggingaiðnaðurinn sé loks farinn að taka við sér eftir döpur ár. Hröð fjölgun byggingakrana gefi þó ekki vísbendingar um nýja bólu á fasteignamarkaði. „Það má mikið ske í viðbót svo að svo verði,“ segir Hermann. „Í dag er verið að byggja nokkurn veginn þann fjölda af íbúðarhúsnæði sem þarf að byggja á hverju ári.“ Hagfræðingar nota stundum kranavísitölu, þ.e.a.s. fjölda þeirra byggingakrana sem eru notkun, til að meta stöðuna í efnhagslífinu. Þórólfur viðurkennir að til séu betri aðferðir til útreikninga en vísitalan sé þó marktæk. Hermann segir fjölgun byggingakrana eiga sér eðlilegar skýringar. „Í dag byggir þú varla bílskúr án þess að reisa byggingakrana. Þeir eru orðnir léttari en áður, meðferðilegri og auðveldari í uppsetningu. Vísitalan getur verið dálítið skökk af þessum sökum en hún gefur vissulega ákveðna vísbendingu.“
Tengdar fréttir Kranavísitalan rís upp úr öskunni Byggingakranar spretta upp eins og gorkúlur á höfuðborgarsvæðinu. Útreikningar Seðlabankans sýna fylgni á milli fjölda krana og fjárfestinga á íbúðamarkaði. 10. júlí 2014 07:00 Mest lesið Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira
Kranavísitalan rís upp úr öskunni Byggingakranar spretta upp eins og gorkúlur á höfuðborgarsvæðinu. Útreikningar Seðlabankans sýna fylgni á milli fjölda krana og fjárfestinga á íbúðamarkaði. 10. júlí 2014 07:00