Kjaradeilan kostaði Icelandair 400 milljónir Jón Júlíus Karlsson skrifar 30. júlí 2014 20:25
Forstjóri Icelandair vonast til að hægt verði að ná langtímasamningi við flugmenn félagsins svo ekki komi til frekari verkfallsaðgerða. Áætlað tap Icelandair vegna verkfallsaðgerða nemur um 400 milljónum króna. Icelandair Group gerði í dag grein fyrir uppgjöri félagsins á öðrum ársfjórðungi. Heildarhagnaður Icelandair nemur um 2,5 milljörðum króna og eykst milli ára þrátt fyrir að fyrirtækið hafi tekist á við kjaradeilur sem höfðu viðtæk áhrif og þúsundir farþega. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair, segir að aðrir þættir í rekstri félagsins brúi afkomu af millilandastarfsemi sem hafi verið undir væntingum. „Við erum mjög sátt. Sérstaklega í ljósi þeirra vandræða sem við stóðum frammi fyrir í maí og júní,“ segir Björgólfur. Samningur flugmanna sem undirritaður var í maí er stuttur og gildir aðeins til 30. september næstkomandi. Björgólfur er bjartsýnn á að samningaviðræður gangi betur í haust. „Það er ekki hollt hvorki fyrir rekstur félagsins eða viðskiptavini að vera í deilum. Það er mikilvægt að ná samkomulagi og helst að það sé til lengri tíma,“ segir Björgólfur. Nánar í myndbandinu hér að ofan.
Mest lesið Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira